Skagfirðingabók - 01.01.1973, Page 35
ÍÞRÓTTIR HALLGRÍMS PÉTURSSONAR
Hodda gengur stafstuddur
stirðfættur meðal virða
(burði bar betri forðum)
Baldur að Gísla tjaldi.
Hann vill í síðsta sinni
seðjendur hér kveðja
dýrbliks — hungurs, — darra
dáðkunnuga runna.
Vísuna skil ég á þess aleið: Hodda-Baldur = gulls-Baldur
(mannkenning), (þ. e. höfundurinn) gengur meðal manna
stafstuddur og stirðfættur að tjaldi Gísla. Hann vill í síðasta sinn
kveðja hér seðjendur dýrblikshungurs (dýrblik — trúlega hugs-
að sem hið dýra blik = gull, hungur þess = fátækt, seðjendur
hins fátæka = örlátir menn gjafmildir); darra runnar = sverða-
runnar = mannkenning; dáðkunnugur = þekktur af dáðum
= dáðríkur. Samkvæmt þessu væri þá efni vísunnar þetta: Hall-
grímur staulaðist við staf meðal manna að tjaldi Gísla. Aður var
hann styrkari. Hann vill kveðja hér í síðasta sinn hina örlátu
og dáðríku menn, vini sína. (Ohætt mun að fullyrða, að sá Gísli,
sem hann nefnir, sé Vísi-Gísli Magnússon á Hlíðarenda).
I þessari svipmynd er trúlegt, að lýsingin sé fólgin, sem barst íil
eyrna drengsnáðans í Reykholti: „stór luralega vaxinn" en „glað-
sinnaður og skemmtinn" til leiðarloka. Á því vann hinn illræmdi
sjúkdómur ekki, enda blasir gleðin við, bak við kviðlinginn. Þótt
hann gengi þá stafstuddur, var hann ernlegri áður.
HELZTU HEIMILDIR:
1 Björn Bjarnason frá Viðfirði: Iþróttir fornmanna.
2 Olafur Davíðsson: Islenzkar gátur, skemmtanir, vikivakar og þulur.
3 Jón Halldórsson prófastur: Ævisöguágrip Hallgríms Péturssonar.
4 Vigfús Jónsson, prófastur: Ævisaga Hallgríms Péturssonar.
5 Hálfdán Einarsson, skólameistari: Ævisaga H. P. í formála fyrir Hall-
grímskveri 1770.
6 Dr. Magnús Jónsson, prófessor: Hallgrímur Pétursson I-—II.
7 Dr. Sigurður Nordal: Hallgrímur Pétursson og Passíusálmarnir.
8 Ljóðmæli Hallgríms Péturssonar: Utgáfa Gríms Thomsens.
33