Skagfirðingabók - 01.01.1973, Side 86
ÞRJÁR SLYSFARIR í FLJÓTUM
eftir hannes hannesson frá Melbreið
Árið 1876, hinn 20. janúar, var ágætt veður, logn og
heiðríkja, sýndist vera stilling í aðsigi og ekki skemmdi, að nýlýsi
var á, svo allt hjálpaðist að, að gera veður og iitlit hið ákjósan-
legasta til þess að ýta skipum úr vör og fara í hákarlaróður.
Þá bjó á Reykjarhóli í Austur-Fljótum Hermann Þorsteinsson,
hinn mikli athafnamaður og sjósóknari. Þetta kvöld, þann 20. jan-
úar, fór hann heiman frá sér áleiðis niður í Hraunakrók í þeim er-
indagerðum að fara í hákarlaróður. Ekki er mér kunnugt, hverjir
voru með honum eða hve margir, en tvo háseta ætlaði hann að
taka með frá Brúnastöðum. Voru það vinnumenn Friðriks Jónsson-
ar, sem bjó á Brúnastöðum frá 1874 til 1893. Menn þessir hém:
Níels Níelsson og Friðrik Sveinsson.
Þegar Hermann kom að Brúnastöðum, voru menn þessir ekki
tilbúnir. Vildi Hermann þá ekki staldra við og bíða þeirra. Kvaðst
hann þurfa að flýta sér og hafa allt til búið til framsetnings, þegar
Níels og Friðrik kæmu.
Þegar þeir félagar eru til búnir, lögðu þeir af stað. Ágætt skauta-
svell var á Miklavatni, en aðeins annar þeirra hafði skauta. Þeir
voru og með svolítinn sleðanubb. Varð það úr, að Níels bindur á
sig skautana og ekur sleðanum með Friðrik á. Segir nú ekki af
þeim að sinni.
Hermann og þeir, sem með honum voru, tóku nú, er þeir komu
á áfangastað, að búa skipið undir framsetning. Líður svo tíminn,
84