Skagfirðingabók - 01.01.1973, Síða 96
SKAGFIRÐINGABÓK
skerin eru um þessa slóð. Þá koma Vatnsfjöllin; á Borgina að bera
í þau, og er þetta mið jafnframt stórskipaleið austan við Innsta-
landsskerin til Sauðárkróks.
Yesturbrúnin á Alnum er Borg í Grísafeli, og er talið, að hún
liggi um þetta mið norður fyrir Skarfasteina. Nesbrúnin, eins og
austurbrúnin á Alnum er nefnd út með Hegranesinu, er miðuð
með Borg í Gil, og á Sjávarborg að bera í bæinn Gil, en þá er átt
við gamla bæinn, sem stóð ofarlega í túninu.
Þegar verið er á sjó nálægt Hegranesinu að vestan, er kallað
að vera í Ósstraumnum. Þar er færamið, sem heitir Skarfaskítur.
Er það fram af hvítri dritskellu í berginu skammt innan við
Naustavík. Ef við brygðum okkur svo austur fyrir Nestána og
létum staðar numið um Geitabergið, þá væri þyrsklings von. Geita-
bergið, sem jafnframt er hæsta bergið á Hegranesinu, er þannig
miðað. að austurbrúnir þess koma vel í ljós.
Þá er að athuga miðin, sem liggja þvert á fjörðinn. Albotninn
er skammt undan Borgarsandi, og er á honum glöggt mið, Þúfan
um Úlfsskálina. Þúfan er uppi á Hegranesinu nokkuð framar-
lega, og á hana að bera í Ulfsskálina, sem er auðþekkt skál ofan
í brúnir Oslandshlíðarfjalla.
Kirkjuturninn er notaður sem mið fram af Króknum og var
látinn bera í Nafirnar. Fór þar hver eftir sínu höfði.
Háeyrarhorn kemur næst, og átti bæinn Skarð að bera yfir
Háeyrina, en svo hét innsta húsið á Eyrinni (Gönguskarðsáreyri).
Það er löngu horfið af sjónarsviðinu, en grasgeiri og hækkun á
nöfinni sunnan við hann hefur síðan verið haft fyrir mið. Suma
formenn heyrði ég kalla þetta mið „Skarð í Fribbu" (á Háeyri
bjó um tíma fönguleg kona, sem bar gælunafnið Fribba í sumra
munni).
Innstahorn er, þegar bæinn Skarð ber yfir hornið á Nöfunum
upp af Eyrinni, Miðhorn, þegar Skarð ber yfir dökka melhornið,
þar sem Skarðshvammar enda, og svo Norðastahorn, þegar sama
bæ ber yfir háa hornið á Nöfunum norðan við Gönguskarðs-
árósinn.
Skipagilið er alldjúpt gil eða klauf í Skarðsnafirnar og mun
94