Skagfirðingabók - 01.01.1973, Page 158
MINNISSTÆÐUR HÁKARLSRÓÐUR
eftir gunnstein STEINSSON. Hrauni á Skaga
í SVEITUM við sjávarsíðuna var fyrr á tímum stunduð
sjósókn jafnframt landbúskapnum, og svo var einnig á Skaga.
Allt fram yfir 1940 var róið til fiskjar frá flestum heimilum í
sveitinni. Aðalútræðið var úr Selvík, og þangað sóttu menn úr mið-
og innhluta sveitarinnar, aðallega til útróðra, einnig var róið úr
Sævarlandsvík, Mallandsvík, Kelduvík, Hraunsvík og víðar.
Sjóróðrar voru aðallega stundaðir á haustin, þó var einnig
sumstaðar róið nokkuð að sumrinu á meðan fleira var um fólk
á heimilum en síðar varð. Var að þessu mikið bjargræði fyrir
hreppsbúa, og auk þess var sjófang oft selt bæði í kaupstað og
aðrar sveitir, sem ekki nutu sjávargagns.
Ur Selvík, Sævarlandsvík og e.t.v. víðar var fyrr á árum farið
ti! Drangeyjar á vorin til fuglveiða, og eitthvað mun hafa verið
róið þaðan til fiskjar af Skagamönnum um fuglveiðitímann, en
frá Drangey stunduðu ýmsir Skagfirðingar fiskiróðra og beittu
fuglaslógi, sem talin var góð beita.
Hákarlsveiðar er mér ekki kunnugt um að hafi verið stundaðar
að ráði nema frá Hrauni, þó getur verið, að eitthvað hafi verið
róið í hákarl frá öðrum stöðum áður fyrr.
Afi minn, Sveinn Jónatansson, bjó á Hrauni frá 1883—1919.
Hann var harðsækinn sjósóknari og aflamaður, bæði á fisk og há-
karl. Hann var mikill ákafamaður og fljótur að búast til róðurs,
og eru til ýmsar sögur um það, en veðurglöggur þótti hann með
afbrigðum og því jafn fljótur að búast til landróðurs, ef honum
156