Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Side 23

Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Side 23
23 Rauntengsl eða merkingartengsl? birtingarform þeirrar huglægni sem hún er sprottin af. Í þessum skilningi gefur mann- eskjan sem vitundarvera veruleikanum merkingu. Þýskur stíll er eitthvað í huga unglings og það sem stíllinn er ræðst af tengslum hans við veruleikann í málleik unglingsins. Óháð þessum tengslum er hið meinta raunhugtak „námshvöt“ gelt og innantómt. Hvöt manneskju til athafn- ar af hvaða tagi sem er tekur augljóslega til þess sem athöfnin er manneskjunni. Eins þeirrar að „læra“. Eða er hægt að hugsa sér að unglingur „læri“ þýsku án þess að þýskan sé honum eitthvað? Er hægt að hugsa sér að hann „læri“ þýsku án þess að það hafi gildi fyrir honum að gera svo? Af einhverjum ástæðum „lærir“ hann þýsku og forsendur þess að það hafi gildi hljóta að lúta að þeirri merkingu sem það hefur allt með öllu að gera svo. Hverjar eru forsendur þess að þýskan verði fyrir unglingnum það viðfangsefni að hann vilji gera þýskustíla? Að okkar dómi hefur slík spurning miklu dýpri aðferðafræðilega þýðingu í rannsóknarverkefni af því tagi sem hér stendur til að vinna (þ.e. um eðli og stöðu náms í merkingarheimi íslenskra unglinga) en hefðbundnar sálfræðimæl- ingar á námshvöt sem raunhugtaki. Við erum ekki einir um að orða efa- semdir af þessu tagi. Maehr og McInerney (2004) staðhæfa að námshvatarkenningar séu iðulega settar fram í félags- og menn- ingarlegu tómarúmi og sé því hætt við að missa marks í þeim aðstæðum sem ekki falla að sniðmáti þeirra. Þannig sýna rann- sóknir McInerney (1995) að eignunarkenn- ingar um námshvöt eins og þær virka í veruleika vestrænna samfélaga gera það alls ekki meðal frumbyggja Ástralíu vegna þess að viðbrögð við námsárangri, góðum eða slæmum, í samfélagi þeirra síðarnefndu eru önnur sakir ólíkrar stöðu nemenda í eigin samfélagi. Segja má að á hverri kenningu um námshvöt séu þannig menningar- og félagslegir snertifletir. Í umfjöllun sinni um „persónulegu fjárfest- ingarkenninguna“ (e. personal investment theory) skilgreina Maehr og McInerney (2004) slíkan snertiflöt við þá kenningu. Þeir kvarta yfir því að (náms)hvatarkenn- ingar nú til dags beinist eingöngu að „til- gangi“ og „sjálfi“. Þótt þar liggi tvímæla- laust gildar rætur hvatar sé það staðreynd ekki síður að einstaklingar breyti ætíð með tilliti til raunhæfra og félags- og menning- arlega leyfilegra kosta. Andi Wittgensteins og Winch svífur hér aftur yfir vötnum þótt þeir komi ekki opinskátt við sögu sjálfir. Efasemdir um rauneðli hugtaksins sjálfsagi Sjálfshugtakið (í samböndunum sjálfsagi, sjálfstjórn o.s.frv.) er ekki síður áhugavert í þessu samhengi en námshvatarhugtakið. Hér má nefna sem byrjunarreit finnska rannsókn, fremur dæmigerða (Kivinen, 2003). Í henni kemur meðal annars fram að þeir nemendur sem beita sig vilja til stjórnar á athygli sinni, sjálfsnámi og sjálfshjálp í náminu búi í haginn fyrir hvöt sína til námsins, hugsun sína og stjórn að- fanga. Með almennari orðum er hér verið að fjalla um þátt sjálfsaga í námi nemenda og sú skírskotun dregur mun lengri þekk- ingarfræðilegan slóða en Kivinen hefur trúlega grunað. Almenna hugmyndin um sjálfsaga er að við beitum okkur „viljastyrk“ til að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.