Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Page 64

Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Page 64
64 Kristín Bjarnadóttir en ekki sem töfrabrögð. Hugmyndirnar yrðu útfærðar innan hvers lands en mælt var með því að fulltrúar þjóða ynnu saman að hugmyndavinnu (OEEC, 1961). Fulltrúar Norðurlandanna fjögurra, Noregs, Danmerkur, Svíþjóðar og Finn- lands, tóku sig saman og stofnuð var nefnd á vegum Norðurlandaráðs, Nor- diska kommittén for modernisering af matematikundervisningen, NKMM. Hún samdi fyrirmyndir að námsefni sem síðan var þýtt og endursamið í hverju landi fyrir sig. Í skýrslu um samvinnuna segir að nefndin hafi orðið sammála um að byggja starf sitt á erlendum fyrirmyndum, sér- staklega UICSM, SMSG og SMP, enda sé stærðfræði einstaklega alþjóðleg náms- grein (Nordisk skolmatematik, 1967). Svo virðist sem ótti við að dragast aftur úr í nútímavæðingu hafi verið hvati að þátttöku í endurskoðunarhreyfingunni. Í málgagni breskra stærðfræðikennara, Mathematics Teaching, birtist eftirfarandi klausa árið 1958: … Efnisþætti eins og mengjaalgebru eða vensl mætti hafa hag af að kenna ... á neðri skólastigum … Menn eru að læra hvernig á að fara að því í öðrum löndum og við munum dragast aftur úr ef við lærum það ekki líka4 (Cooper, 1985, bls. 76). Þetta sjónarmið kom víðar fram, til dæmis í Brasilíu: „Stærðfræðikennslan varð að vera nútímaleg eins og Brasilía vildi og bjóst við að verða“ (Búrigo, 2008). Þessa gætti líka á Íslandi: „Nú þurfum við að gæta heiðurs okkar og hagsmuna í menningarsamkeppni nútímans, gæta þess að kröfurnar eru aðrar en þær voru,“ 4topics as the algebra of sets or relations might be taught with a profit … lower down the school … In other count- ries they are learning how to do this, and unless we learn too we shall be left behind. sagði Kristján Sigtryggsson (1964) í frá- sögn af ferð sinni til Bandaríkjanna þar sem hann kynnti sér nýjungar í stærð- fræðinámsefni. Aðdragandi endurskoðunar á Íslandi Ríkt hafði stöðnun í námsefnismálum á Ís- landi á meðan orka yfirvalda hafði farið í skólabyggingar í kjölfar nýrra fræðslulaga árið 1946 (Kristín Bjarnadóttir, 2009). Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri í Reykjavík, hafði frumkvæði að endurskoðun á námsefni í stærðfræði. Hann sendi Kristján Sig- tryggsson, eftirlitskennara í reikningi við barnaskólana í Reykjavík, vestur um haf veturinn 1963–64 til að kynna sér nýtt námsefni í stærðfræði. Kristján (1964) rit- aði grein þar sem hann lýsti meðal annars námsefni UICSM og SMSG. Sýnishorn af því barst til Íslands eftir ferð hans en engar ákvarðanir voru teknar um sinn (Kristinn Gíslason, 1978). Guðmundur Arnlaugsson mennta- skólakennari hafði hins vegar spurnir af endurskoðunarstarfi í Danmörku frá koll- egum sínum sem hann hafði kynnst er hann dvaldi við nám og störf í Danmörku á árunum 1933–36 og 1939–45. Guðmund- ur var ráðinn námsstjóri í stærðfræði í hálfu starfi við Menntamálaráðuneytið árið 1964. Hann benti á námsefni NKMM fyrir barnaskóla, sem Agnete Bundgaard, kennari á Friðriksbergi í Kaupmannahöfn, vann að, á fundum með Jónasi B. Jóns- syni, Kristjáni Sigtryggssyni og Kristni Gíslasyni kennara. Kristinn Gíslason fór til Friðriksbergs vorið 1966 og kynnti sér námsefnið. Aðeins námsefni fyrsta bekkjar var tilbúið en efni fyrir tvö næstu námsár
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.