Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Page 88

Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Page 88
88 Meyvant Þórólfsson Þess vegna má segja að samkomulag hafi ekki náðst innan vísindasamfélaga nútímans, hvort sem er raunvísinda, menntavísinda eða annarra, um það hvert skuli stefna með þetta mikilvæga svið menntunar. Enginn vogar sér að andmæla því að almenn náttúruvísindamenntun þurfi að taka mið af undirbúningi fyrir þau vísinda- og tæknistörf sem stór hluti nem- enda almenna skólakerfisins mun stunda í framtíðinni. Fyrir rúmum aldarfjórðungi áætlaði Peter Fensham (1985) að hlutfall þessa hóps næmi um 20% og öllum má ljóst vera að nútímasamfélag hefur mikla þörf fyrir vísinda- og tæknimenntað fólk. Árið 2008 var haldið semínar á vegum Nuffield-stofnunarinnar í Englandi þar sem margir málsmetandi aðilar í Evrópu á sviði náttúruvísindamenntunar mættu til að ræða stöðu hennar (Osborne og Dillon, 2008). Þar var einmitt áréttað að almenna skólakerfið þyrfti að taka mið af báðum þessum hópum við skipulag náms og kennslu, annars vegar þeim sem þyrftu almenna náttúruvísindamenntun og hins vegar þeim sem hygðust stunda vísindi í framtíðinni. Skólar þyrftu samt að bjóða upp á vandaða náttúruvísinda- menntun (e. education in science, skáletrað í texta höfundanna) fremur en þjálfun og undirbúning fyrir einhver óskilgreind framtíðarstörf (e. pre-professional train- ing). Skýrsluhöfundar tóku samt fram að vönduð náttúruvísindamenntun fæli í sér að nemendur þyrftu að öðlast skilning á grunvallaratriðum vísindaþekkingar (e. canon of scientific knowledge), en að þeir þyrftu jafnframt að átta sig á eðli og hlut- verki vísinda í samfélaginu. Samtök, nefndir, rannsakendur og skýrsluhöfundar sem fjallað hafa um nátt- úruvísindamenntun á síðustu árum hafa komist að svipaðri niðurstöðu (Sjá m.a. AAAS, 1993; Black og Atkin, 1996; Millar, Leach, Osborne og Ratcliffe, 2006; Millar og Osborne, 1998). Skilaboð allra eru skýr hvað varðar náttúruvísindaleikinn sem Yager lýsti svo: Ekki nægir að þjálfa nem- endur, kenna þeim reglurnar og lögmálin; þeir þurfa einnig að taka virkan þátt, þ.e. „leika leikinn“. En jafnframt er skýrt tekið fram að það gerist ekki án grundvallar- þekkingar (sbr. hér á undan canon of sci- entific knowledge). Hugmyndir Yagers um STS tóku sannarlega mið af slíkri grund- vallarþekkingu líka (Yager, 1996). Meðal úrlausnarefna sem menn telja brýnt að huga að í þessum efnum í náinni framtíð eru eftirfarandi: • Tilgangur náttúruvísindamenntunar. Menn eru ekki sammála um tilgang náttúrufræðimenntunar í skólum. Sér- fræðingar í náttúruvísindamenntun benda jafnan á a.m.k. fjórar megin- ástæður fyrir mikilvægi slíkrar mennt- unar (Osborne, 2000). Í fyrsta lagi nytjasjónarmiðið (e. utilitarian argu- ment), þ.e. náttúruvísindanám nýtist nemendum til að skilja ýmsa hluti í lífi og starfi. Í öðru lagi er efnahags- lega sjónarmiðið (e. economic argu- ment), sem vísar til þess að samfélagið þurfi á vísinda- og tæknimenntun að halda í þágu efnahagslegra framfara. Í þriðja lagi er menningarsjónarmiðið (e. cultur al argument) eða öllu heldur það sjónarmið að varðveita menningar-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.