Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Side 172

Tímarit um menntarannsóknir - 01.06.2012, Side 172
172 Guðrún Björg Ragnarsdóttir og Anna-Lind Pétursdóttir hugunum í tíma og óformlegum fundum fyrri höfundar með kennurum, sérstaklega þar sem þeir voru að beita þessum vinnu- brögðum í fyrsta skipti. Mögulega hefði athugun og handleiðsla af hálfu seinni höfundar, sem hafði víðtækari þekkingu á þessum vinnubrögðum, getað leitt til betri árangurs. Einnig hefði verið eðlilegt að gera nýtt virknimat og prófa fleiri útgáfur stuðningsáætlunar, með aukinni þjálfun í sjálfstjórn og jafnvel auknum stuðningi í kennslustundum, en ekki vannst tími til þess þar sem komið var að lokum skóla- ársins þegar rannsókninni lauk. Æskilegt væri að endurtaka rannsóknina með betra svigrúmi til að prófa fleiri útgáfur stuðningsáætlana. Í þessari rannsókn voru stuðningsáætlanir notaðar í sex til þrettán vikur. Um er að ræða takmarkaðan íhlut- unartíma og óvíst er hversu langvarandi áhrifin verða en ekki er ólíklegt að þau muni vara ef náttúrulegir styrkjar verða áfram til staðar, svo sem jákvæð athygli og viðurkenning kennara og bekkjarfélaga. Æskilegt væri að gera langtímarannsókn eða framhaldsrannsókn með þeim þremur þátttakendum þessarar rannsóknar sem tóku góðum framförum til að meta hversu lengi jákvæð áhrif stuðningsáætlana á truflandi hegðun nemenda vara. Líkt og í öðrum rannsóknum með einliða sniði eru þátttakendur fáir, en fjöldi mælinga fyrir og eftir íhlutun vegur upp á móti þeirri takmörkun. Mælingarnar sýndu endurtekið að litlar jákvæðar breyt- ingar urðu á hegðun þátttakenda fyrr en íhlutun hófst. Einnig voru breytingarnar bundnar við þann þátttakanda sem fékk einstaklingsmiðaða stuðningsáætlu hverju sinni, jafnvel þegar annar þátttak andi var í sama bekk með sama kennara, eins og í tilviki Birgis og Davíðs. Þó veldur þröngt aldursbil þátttakenda því að varlega þarf að fara í að draga ályktanir um áhrif stuðn- ingsáætlana með stighækkandi frammi- stöðuviðmið á hegðunarerfiðleika annarra aldurshópa. Mikilvægt er að rannsaka áhrif stuðningsáætlana með stighækkandi færniviðmiðum hjá öðrum aldurshópum, svo sem á mið- og unglingastigi grunn- skólanna, auk barna á leikskólaaldri. Snemmtæk íhlutun er lykilatriði í að draga úr hegðunarerfiðleikum (Bradley o.fl., 2008). Auk þess væri áhugavert að meta nánar áhrif á annars konar markhegðun en truflandi hegðun, svo sem tilfinningalega erfiðleika eða námsástundun. Í meistara- rannsókn fyrri höfundar voru einnig gerð- ar mælingar á námsástundun nemenda sem ekki reyndist rúm til að fjalla um hér en verða væntanlega birtar síðar. Meðan á rannsókn stóð tók fyrri höf- undur eftir því að viðhorf kennara skipti máli varðandi framkvæmd stuðningsáætl- ana. Nokkuð bar á ákveðnu óöryggi gagn- vart vinnuferlinu og væri áhugavert að skoða hvort starfsaldur, menntun eða kyn kennara skipti máli í því sambandi. Einnig væri æskilegt að auka enn frekar fræðslu og undirbúning fyrir starfandi sem og verðandi kennara svo þeir geti betur fram- kvæmt einstaklingsmiðaðar stuðnings- áætlanir með þeim nemendum sem þurfa á því að halda til að snúa af óheillabraut langvarandi hegðunarerfiðleika. Höfundar þakka nemendunum, foreldrum þeirra og kennurum fyrir góða samvinnu við rannsóknina.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.