Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2017, Blaðsíða 97
96
Úranía er í raun lykillinn að hinsegin kynverund Bóasar. Í fyrsta lagi
vísar sjálfur titillinn ekki aðeins til grísku gyðjunnar Úraníu, músu stjörnu-
fræðinnar, sem kemur mjög við sögu í bókinni, heldur einnig til orðanna
Urning/Uringin (þ.) og uranian (e.) sem voru notuð um einstaklinga sem
hneigðust til sama kyns, til dæmis í skrifum þýska mannréttindafrömuðar-
ins Karls Heinrichs Ulrichs sem komu út á tímabilinu 1864–1879. Ulrichs
notar þar orðið Urning um karlmann sem fæðist með afgerandi kvenlega
innri eiginleika og hneigist kynferðislega til karla og Uringin er sömuleiðis
„karlmannleg“ kona sem hneigist til kvenna. Enn fremur kallaði Ulrichs
gagnkynhneigðan karlmann Dioning.40 Orðin Urning og Dioning dró
hann af þeim tveimur ólíku sögum sem til eru um fæðingu ástargyðjunnar
Afródítu og teknar eru sem táknræn dæmi um ólíkar tegundir Erosar í
ræðu Pásaníasar í Samdrykkjunni eftir Platon. Annars vegar er um að ræða
„alþýðlegan Eros“ eða hvöt karls sem beinist bæði til drengja og kvenna
en Pásanías tengir hann við söguna þar sem hin „díóníska“ Afródíta er
dóttir Seifs og gyðjunnar Díónu. Hins vegar er „himneskur Eros“, eða
sveinaást, hvöt sem beinist að hinu karllega og kennd er við söguna um
hina „úranísku“ Afródítu sem er eingetin dóttir himnaguðsins Úranusar
– afsprengi ástar þar sem engin kona kemur við sögu.41 Hugtökin uranian
og uranian love skutu einnig rótum í enskri tungu og birtust meðal annars
í riti Edwards Carpenters, The Intermediate Sex (1908). Enn fremur festust
hugtökin „úranísku skáldin“ og „úranísk ljóðlist“ við hóp róttækra vestur-
evrópskra skálda og verk þeirra á síðari hluta 19. aldar og fram til 1930 en
einkennandi í þeim verkum var aðdáun á sögu og menningu Forn-Grikkja
og tilfinningaþrungnum samböndum ungra drengja og fullorðinna karla.42
Orðið Úranía er þannig í þessu samhengi ótvíræð skírskotun til karlaásta.
Í öðru lagi stokkar skáldsagan Úranía upp viðteknar hugmyndir um
kyn og kynverund en þau samfélög sem persónurnar kynnast á öðrum
hnöttum eru til dæmis frábrugðin Jarðlífinu að því leyti að sálir og lík-
40 Rit Ulrichs komu út í heildarútgáfu sem Forschungen über das Rätsel der mannmänn
lichen Liebe, Leipzig: verlag von Max Spohr, 1898. Sjá einnig enska þýðingu, The
Riddle of ,ManManly‘ Love: The Pioneering Work on Male Homosexuality, 2 bindi,
þýð. Michael A. Lombardi-Nash, New York: Promotheus Books, 1994. Stutt yfirlit
um hugmyndir Ulrichs má enn fremur sjá í Nikki Sullivan, A Critical Introduction
to Queer Theory, Edinborg: Edinburgh University Press, 2003, bls. 4–5.
41 Platon, Samdrykkjan, 2. útg., Lærdómsrit Bókmenntafélagsins, þýð. Eyjólfur Kjalar
Emilsson, Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag, 1999, bls. 60–63.
42 Sjá t.d. Timothy d’Arch Smith, Love in Earnest: Some Notes on the Lices and Writings
of English ,Uranian‘ Poets from 1880–1930, Routledge og Kegan Paul PLC, 1970.
Ásta KRistín BEnEdiKtsdóttiR