Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Síða 18
S k ú l i S k ú l a s o n
18 TMM 2014 · 2
á vísindum almennt í samfélaginu og hvers kyns bábiljur og vitleysur vaði
uppi. Í þessu felst m.a. vandi nútímans – efnishyggja er mikil, þekking er of
sjaldan nýtt skilyrðislaust til að skapa betra líf á jörðinni og umgengni okkar
við sjálf okkur, annað fólk og náttúruna ber þess skýr merki.
Lokaorð
Þrátt fyrir þessa gagnrýnu sýn á stöðu þekkingar í nútímasamfélögum er ég
bjartsýnn fyrir hönd mannsins og náttúrunnar. Ástæða þess er ekki síst sú
að við ráðum enn yfir hugsun og vinnubrögðum sem skapa mikilvæga þekk-
ingu sem veitir okkur djúpan og gefandi skilning á veröldinni og nota má til
bæta heiminn. Meðan svo er getur maður ekki annað en haft trú á menn-
ingunni. En til þess að menningin megi dafna þurfum við að sameinast um
að rækta það góða, fallega og sanna í tilverunni. Eða eins og orð Guðmundar
Páls Ólafssonar tjá svo vel og vísað var til í upphafi þessarar hugleiðingar: „Ef
til vill mun maðurinn aldrei þroskast svo að hann öðlist heildarsýn á Móður
Jörð en hann getur sannarlega komist nær því marki. Til þess þarf hann ekki
að leggja mikið á sig en hann þarf bæði að vita hver hann er og vanda sig
betur við að lifa.“
Þessi hugleiðing er tileinkuð náttúrufræðingnum Guðmundi Páli. Hann
þroskaði samband sitt við náttúruna á fallegan hátt og hann skildi mörgum
öðrum betur mátt og mikilvægi þekkingar til að skilja verðmæti náttúr-
unnar og gæta þeirra betur. Þetta má sjá í öllum verkum hans og gjörðum.
Þekkingarleit hans, miðlun til samfélagsins og barátta fyrir málstað móður
jarðar var knúin áfram af orku vináttu og ástar hans á náttúrunni. Með
einlægri vináttu bætti Guðmundur Páll Ólafsson heiminn.23
Heimildir
Einstein, Albert 1931. The world as I see it. Forum and Century, volume 84. New York: Forum
Publishing Company, U.S.A.
Guðmundur Páll Ólafsson 2013. Vatnið í náttúru Íslands. Mál og menning, Reykjavík.
Keller, Evelyn Fox 1983. A Feeling for the Organism: The Life and Work of Barbara McClintock.
W.H. Freeman and Co. San Francisco, U.S.A.
Lewontin, Richard C. 1991. Biology an Ideology: The Doctrine of the DNA. House of Anansi Press
Limited, Canada.
Martin, Jane Roland 1988. Science in a different style. American Philosophical Quarterly 25:
129–140.
Páll Skúlason 1998. Umhverfing: Um siðfræði umhverfis og náttúru. Háskólaútgáfan, Reykjavík.
Rhoads, Bruce L. 2006. The dynamic basis of geomorphology reenvisioned. Annals of the Associa-
tion of American Geographers 96: 14–30.
Skúli Skúlason 1994. Um vísindi og veruleika. Bls. 309–214 í Róbert H. Haraldsson & Þorvarður
Árnason Náttúrusýn: Safn greina um siðfræði og náttúru. Rannsóknastofnun í siðfræði,
Reykjavík.
Steindór J. Erlingsson 2002. Genin okkar: Líftækni og íslenskt samfélag. Forlagið, Reykjavík.