Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Page 45

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Page 45
S j ó n t r u f l a n i r TMM 2014 · 2 45 „Já, ekkert mál. Hérna … hefur hún eitthvað hegðað sér undarlega undan- farið?“ Ég snarvaknaði. „Ja … sko. Hún varð dálítið rugluð eftir þessa laseraðgerð þarna í fyrra- dag. Dreymdi illa og … já, hún var örlítið ringluð í gær. En hún svaf mjög vel í nótt og var bara hress og kát í morgun. Hvers vegna spyrðu?“ „Tja … hún hefur ekki verið sjálfri sér lík í dag. Eða … hvað skal segja. Hún hefur verið að tala við sjálfa sig. Svo þegar ég gerði góðlátlegt grín að henni núna rétt áðan, þvertók hún fyrir það. Sagðist hafa verið að tala við viðskiptavin. Fyrst hélt ég að hún væri að grínast en mér varð fljótlega ljóst að henni var full alvara.“ „Hvað ertu að segja?“ tautaði ég. Mér var orðið illt í maganum. „Já, ég veit ekki hvað gengur að stúlkunni. Ég held að það væri best að hún tæki sér frí það sem eftir er dagsins.“ „Ég kem og sæki hana.“ „Þakka þér fyrir. Kannski er þetta bara þreyta. Það er stundum merkilegt hvað smávægilegar aðgerðir geta haft mikil áhrif á mann.“ Ég kvaddi Jóhönnu og fletti síðan uppá númerinu hjá augnlækninum. Ég þurfti að bíða dálítið lengi á línunni og var orðinn óþolinmóður því mig langaði að sækja Brynju sem fyrst. „Sjónlausnir, Guðmundur.“ „Já, góðan daginn. Sverrir Tryggvason heiti ég. Kærastan mín fór í aðgerð hjá þér núna í fyrradag, Brynja Björk Jóhannesdóttir.“ Læknirinn hugsaði sig um augnablik. „Brynja, já. Einmitt.“ „Hún hefur verið dálítið ringluð eftir aðgerðina. Hefur séð einhverjar sýnir.“ „Sýnir? Hvernig þá?“ „Ja … þetta hljómar dálítið undarlega. En hún virðist sjá fólk sem er ekki til staðar.“ Læknirinn þagði augnablik. „Nú átta ég mig ekki alveg á því hvað þú átt við. Sumir sjúklingar upplifa einhverskonar sjóntruflanir rétt í byrjun, en það er yfirleitt fljótt að lagast. Sér hún tvöfalt? Ég hef heyrt þeirrar aukaverkunar getið, en hún er mjög óalgeng.“ „Nei, nei. Þetta eru engar sjóntruflanir … eða … mér þykir hæpið að kalla það svo. Þetta eru sýnir. Ofskynjanir. Okkur datt helst í hug að þetta væru einhver eftirköst af þessari róandi töflu sem hún fékk fyrir aðgerðina. Mig langaði að spyrja þig hvaða efni voru í töflunni og hvort þú vissir um dæmi um aukaverkanir af þessu tagi?“ „Jahá,“ sagði læknirinn og dró seiminn. „Það er ekkert annað. Ég efast um að þetta tengist aðgerðinni nema hún hafi verið eitthvað óeðlilega kvíðin fyrir henni. Þá gæti þetta verið spennufall. Annars er ég enginn geðlæknir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.