Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Page 86

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2014, Page 86
A r t h u r B j ö r g v i n B o l l a s o n 86 TMM 2014 · 2 kemur hafi gert víðreist, áður en hann lagði upp í Íslandsferðina, eru flestir á einu máli um þetta atriði. Blæbrigðaríkari náttúra en sú íslenska muni vandfundin. Þessa verða allir varir sem fylgja erlendum ferðamönnum um hálendi og víðerni landsins. Og það er ekki síst víðsýnið sem hrífur huga erlendra gesta á fjöllum uppi. Sem og hitt að sjaldnast er nokkurt mannvirki að sjá. Hægt er að fara um víðar lendur án þess að koma nokkurs staðar auga á neina „bletti á náttúrunnar stóru bók“. Og fyrir utan þann sálar- þvott sem fyrr var nefndur og margur erlendur gestur hefur talið sig finna í návígi við ósnortna náttúru landsins, þá er eins og auðnin hafi stundum eins konar „trúarleg“ áhrif á þá sem um hana fara. Ekki bara að fjöllin breytist í „dómkirkjur jarðarinnar“, eins og Ruskin komst að orði, heldur fara upp- lýstir Evrópubúar að finna fyrir einhvers konar dulmagni, sem þeir rekja að nokkru leyti til náttúrunnar. Þessi tilfinning getur jafnvel orðið svo sterk að hún beri erlenda gesti ofurliði. Sem dæmi um þetta er grein sem birtist í víðfrægu þýsku tímariti fyrir fáeinum árum. Greinina skrifaði blaðakona og rithöfundur á miðjum aldri. Í greininni lýsir konan því, þegar hún fer með Kristleifi, bónda á Húsafelli, í ökuferð á jeppa inn að stóru gljúfri, uppi í fjall- inu fyrir ofan bæinn. Eftir að hafa haft á orði, hve örugglega bóndinn stýri jeppanum yfir ár og læki, um vegleysur upp á fjallið, segir greinarhöfundur: Á Íslandi eru margir staðir, sem geta gert mann orðlausan. Þetta er einn sá áhrifa- mesti, sem ég hef séð, með lítils háttar gróðri upp í miðjar hlíðar, vindi, vatni og fjólubláum og grænum steinum sem hrynja niður í dalinn fyrir neðan. Mér finnst ég ekki vera stærri eða merkilegri en mosinn sem hér grær. Eins og ég sé ekki annað en hóstakjöltur jarðsögunnar, örsmá og skipti engu máli. Og skyndilega verður mér ljóst, hvers vegna menn trúa hér á útburðarvæl í barni, sem fátæk vinnukona á að hafa borið út í þessu gljúfri endur fyrir löngu. Nú vill svo til að ég var sjálfur með í þessari ökuferð. Og ég þykist þess full- viss að hvorki ég né kunningi minn, Kristleifur bóndi á Húsafelli, eigum eftir að gleyma því sem gerðist, þegar við komum með konunni upp á barm hins mikla gljúfurs í fjallinu. Þessi annars hvatvísa og lífsreynda kona umbreytt- ist beinlínis í það hóstakjöltur jarðsögunnar sem hún talar um í greininni. Þegar hún steig út úr jeppanum þarna á fjallinu gagntók dulmagn staðarins hana svo gjörsamlega, að hún brast í grát. Hún stóð þarna á gljúfurbarm- inum, hátt uppi á fjallinu, og tárin streymdu niður kinnarnar. Hún sagði mér eftir á að þrátt fyrir að hún hefði farið víða og komið í allar heimsálfur, hefði hún aldrei orðið fyrir neinu þessu líku. Hún hefði aldrei kynnst því fyrr að landslag hefði snortið hana svo djúpt og komið jafn miklu róti á hugann. Þar sem hún stóð þarna uppi á fjallinu hafi hún orðið fyrir snert af dulrænni reynslu, sem hefði verið henni lokuð bók til þessa. Ástæðan fyrir því að ég var svo margorður í upphafi máls um það, hvernig íslenskir höfundar hafa lýst hughrifum sínum af náttúru landsins, var einfaldlega sú að þessum lýsingum svipar mjög til þess sem erlendir gestir hafa skrifað um sama efni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.