Hugur - 01.01.2015, Blaðsíða 7
Inngangur ritstjóra 7
„Er hægt að kenna gagnrýna hugsun?“ sem upphafspunkt spurningar sinnar um
hvort og hvernig gagnrýna megi kennda hugsun, sem hún svo rýnir nánar í, m.a.
í gegnum hugleiðingar um gagnrýnin fræði Judithar Butler. Skýra tengingu við
líkamsþemað má finna í áminningu Nönnu um að veita því athygli í hvaða sam-
hengi sem manneskjur í samfélagi við aðrar manneskjur við beitum gagnrýnni
hugsun, m.ö.o. hvetur hún okkur til að taka „líkamleika gagnrýninnar hugsunar“
inn í myndina.
Mikil gróska hefur verið í útgáfu íslenskra heimspekibóka undanfarið, og því
er úr miklu efni að moða þegar kemur að því að stuðla að birtingu umfjallana og
ritdóma um íslenskar heimspekibækur, en segja má að því verkefni hafi ekki verið
sinnt nægilega vel undanfarin ár, miðað við þann fjölda bóka sem hafa komið út.
Að þessu sinni birtast í Hug fimm umfjallanir um nýútkomnar bækur. Eins og
áður kom fram birtast hér umfjallanir um þrjár af þeim bókum Páls Skúlasonar
sem hann sendi frá sér á síðustu árum. Róbert Jack fjallar um Hugsunin stjórnar
heiminum, Ólafur Páll Jónsson fjallar um Háskólapælingar, og Bára Huld Beck
fjallar um Náttúrupælingar. Auk þess birtast hér umfjöllun Jakobs Guðmundar
Rúnarssonar um bókina Inquring into contemporary Icelandic philosophy (ritstjóri
Gabriel Malenfant), og umfjöllun Valgerðar Pálmadóttur um Dagbók 2016: Árið
með heimspekingum (ritstjórar og höfundar Erla Karlsdóttir, Eyja M. Brynjars-
dóttir, Nanna H. Halldórsdóttir og Sigríður Þorgeirsdóttir).
Það hefur verið mér ákaflega lærdómsríkt ferli að taka að mér ritstjórn Hugar
og vil ég þakka öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg innilega fyrir hjálpina.
Sérstakar þakkir fær þó forveri minn, Jóhannes Dagsson, fyrir að vera einstaklega
hjálpsamur og gjafmildur á góð ráð. Sérstakar þakkir fær einnig Gústav Adolf
Bergmann Sigurbjörnsson fyrir umsjón með umbroti og lokafrágangi þessarar
útgáfu.
Guðbjörg R. Jóhannesdóttir
Hugur 2015-5.indd 7 5/10/2016 6:44:52 AM