Hugur - 01.01.2015, Blaðsíða 13
Hugtökin búa í hjarta okkar 13
stöðu ég mótaði mér. Í megindráttum hefur reynsla mín allar götur frá því ég var
unglingur verið í samræmi við hina upphaflegu reynslu sem ég fékk sem ungur
maður. En þetta kann að sjálfsögðu að vera breytilegt frá einum manni til annars.
Við þurfum að hafa í huga að skapgerð fólks kann að hafa mikil áhrif á hugsunina
og líka reynsluna.
Finnst þér að lífsreynslan hafi einhver áhrif á það hvernig maður metur hlutina?
Hefur maður til dæmis dýpri tilfinningu fyrir gildi hlutanna?
Já, ég held að þetta megi til sanns vegar færa, menn kynnast auðvitað ýmsu með
aldrinum sem hefur áhrif á þá, sem dæmi mætti nefna ýmislegt varðandi ástina og
samskipti milli vina, nú og svo kynnast menn að sjálfsögðu alls konar fólki, sem
miðlar oft af sinni reynslu og fræðir mann um eitt og annað. Alls konar þekking,
vitneskja, fróðleikur og skilningur hefur áhrif á hugsun okkar. Mestu skiptir þó
hvernig við beinum hugsuninni að reynslunni og að þekkingunni. Ég hef þá trú að
flestir heimspekingar móti mjög snemma sína hugsunaraðferð, ef ég má orða það
svo, og þroskist þá vonandi í hugsun sinni. Svo er annað sem gerist með aldrinum
sem er einfaldlega þetta að maður kynnist æ fleiri heimspekingum og tileinkar
sér bæði vitandi vits og oft óafvitandi hugmyndir frá þeim og nýtir þær til eigin
yfirvegunar. Það er engin tilviljun að heimspekin hefur verið sögð samræða fyrst
og fremst, eða ákveðin tegund af samræðu. Það er til alls konar samræða, margs
konar umræður, en heimspekin er í mínum huga viss tegund af samræðu þar sem
við erum að deila sameiginlegum hugmyndum og hugtökum, og skýrum þá oft út
hvert fyrir öðru hvað þessi hugtök merkja og hvaða máli þau skipta.
Mig minnir að það sé haft eftir Wittgenstein að lífið eða lífsreynslan geti kennt manni
trú á guð eða að guð sé til eða eitthvað í þá áttina. Kannski er þá hugsunin sú að
kynni af missi, þjáningu og fleiru af því tagi geti einhvern veginn leitt mann að slíkri
niðurstöðu. Heldurðu að lífið geti kennt manni stóra hluti af þessu tagi?
Já, þegar þú pressar mann nú með þessum hætti, Jón, rifjast upp eitt og annað
sem kannski gæfi tilefni til að gera meira úr reynslunni en ég gerði hér í upphafi
á þessu spjalli okkar. Í þessu sambandi langar mig til að segja frá persónulegri
reynslu sem gerist eiginlega á sama tíma og ég hreifst af heimspeki með þeim
hætti að ég hef ekki almennilega beðið þess bætur síðan, þessar hugsanir sem ég
hugsaði þá, 16, 17, 18 ára: Þessi reynsla er sú að ég verð ástfanginn af þeirri stúlku
sem ég trúlofaðist og hefur verið konan mín allar götur síðan. Þarna gerist eigin-
lega tvennt á skömmum tíma á ævi minni sem eiginlega umturnar eða gjörbreytir
mínu lífi og óneitanlega eru þessir tveir viðburðir í mínu lífi nátengdir.
Hér mætti skjóta inn í einni heimspekilegri athugasemd almennt um lífið og
tilveruna, en það er að líf okkar markast fyrst og síðast af ákveðnum viðburðum
sem hafa að sjálfsögðu mismikla þýðingu fyrir okkur. En ég hygg að langflestir
hafi á lífsferli sínum verið markaðir af tilteknum viðburðum sem hafa skipt miklu
máli í lífi þeirra og jafnvel að vissu marki opinberað þeim sannleikann um lífið ef
ég má orða það svo.
Hugur 2015-5.indd 13 5/10/2016 6:44:54 AM