Úrval - 01.05.1953, Síða 6

Úrval - 01.05.1953, Síða 6
4 ÚRVAL, sínu og frelsi. 1 réttarskjölun- um fylgdist hann með glím- unni milli ákæranda og sak- bomings. Hann lá vakandi á nætumar og braut heilann um tilfinningar þeirra, sem biðu dóms. Hann velti fyrir sér, hvað gerðist í sál sakamannsins, þeg- ar hann að lokum gafst upp og játaði. Rudolf litli hafði ekki trú á, að neitt væri til, sem kallast gæti samvizka, það hef- ur hann staðhæft seinna á æv- inni. Uppvaxtarskilyrði þessa ó- venjuviðkvæma drengs var heimili, sem einkenndist af smásmugulegu nuddi kald- lyndra foreldra, sem börnunum fannst sjálfsagt að taka sem minnst mark á. Með skef jalausu og sjúklegu ímyndunarafli reyndi hann að vega á móti minnimáttarkenndinni, sem skapast hafði af fyrirlitningu allra og vináttuskorti. Þannig var ástatt fyrir drengnum, þeg- ar hann komst á kynþroskaald- urinn og fluttist ásamt foreldr- um sínum til Leipzig, þar sem faðir hans var skipaður í ríkis- ráðið, og fékk þar með drauma sína uppfyllta. Þetta var í þá tíð, þegar belgingur hernaðarsinnanna og skriðdýrsháttur alþýðunnar var sem mestur í keisaradæminu rétt fyrir heimsstyrjöldina fyrri. Þá skeðu við einn fínasta menntaskólann í Leipzig skelfi- legir atburðir. Það var sjálfs- morðsfaraldur meðal nemend- anna í efstu bekkjunum. Með skömmu millibili fyrirfóru sér þrír nemendur, áður en skóla- yfirvöldin og lögreglan tóku í taumana. Einn af þeim, sem við þetta voru riðnir, var Rudolf Ditzen. Hann var tekinn úr skóla, eins og allir hinir. En þar sem foreldrar hans höfðu mikinn áhuga á, að hann dræg- ist ekki aftur úr við námið, sendu þau hann í skóla í smá- bænum Rudolstadt í Thuring- en. Dag einn kom svo frétt það- an, að Rudolf og einn af félög- um hans hefðu haldið áfram sjálfsmorðstilraununum. Þeir höfðu beint skammbyssum að hjarta hvors annars og hleypt af. Rudolf Ditzen lifði af til- ræðið en félagi hans beið bana. Sá vitnisburður, sem þetta ber tíðarandanum, verður ekki misskilinn. Þyngsta sökin fell- ur á foreldrana. Þó að foreldrar séu að vissu marki mótaðir af umhverfi og erfðavenjum, þá er það þó í nánu samlífi mann- dómur þeirra, sem mestu máli skiptir. Og auðvitað voru líka til foreldrar í Þýzkalandi á dög- um Vilhjálms annars, sem reyndu að skilja börn sín — göfuglyndir foreldrar, sem ekki töldu sérkenni þeirra galla né yfirsjónir þeirra bera vott um spillingu. En hvað viðvíkur heiðurshjónunum Ditzen, þá gáfu þau nú upp alla von um að sjá elzta son sinn skrýðast dóm- arakuflinum og verða samboð-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.