Úrval - 01.05.1953, Blaðsíða 66
Sagan af hinum hágöfugu líkum.
Grein úr „Life“,
eftir Will Lang.
AÐ var 27. apríl 1945. Loka-
hríð stríðsins var að nálg-
ast og bandarískt stórskotalið
var að leita að földum skotfæra-
birgðum um sveitahéruð Thii-
ringen. I 20 km löngum og kol-
dimmum námugöngum saltnám-
unnar við Benterode höfðu þeir
fundið 400.000 lestir af skotfær-
um og sprengiefnum. Þar rák-
ust þeir á nýsteyptan múrvegg,
sem lokaði namagangi, 600 metr-
um undir yfirborði jarðar. Þeir
grófu sig gegnum 2 metra þykka
múrsteypu og komust þá inn í
leynihólf. Það var sneisafullt af
veggtjöldum, hundruðum prúss-
neskra herdeildafána — og f jór-
um líkkistum. Einhver hafði
skrifað í flýti nokkur orð á kist-
urnar með venjulegri rauðkrít.
Aletrunin skýrði frá innihaldinu
blátt áfram eins og þetta væri
venjuleg vörusending.
Þannig hófst eitt kynlegasta
vandamál stríðsins — sem yfir-
stjórn Bandaríkjahers hefur
haldið vandlega leyndu þar til
nú (1950) *). í líkkistunum voru
*) Ekki virðist ástæða til að taka
umsögnina um „leyndarmálið" mjög
bókstaflega, því að í janúarhefti
„National Geographic Magazine" 1946
er í grein er nefnist „Europe’s Looted
nefnilega hinar jarðnesku leifar
þriggja mest dáðu hemaðar-
jöfra Þýzkalands: Friðriks
mikla, Friðriks Vilhjálms I, hins
eiginlega upphafsmanns prúss-
neska herveldisins, og Pauls von
Hindenburg hershöfðingja. 1
fjórðu kistunni var lík frú von
Hindenburg. Um þrem vikum
áður höfðu nazistar falið þessi
hágöfugu lík og ætlað sér að
halda þeim leyndum þar til þeir
gætu endurvakið aðra kynslóð
til uppreisnar og sigurs.
Þessi ótímabæri fundur lík-
anna var mikil heppni. En um
leið sköpuðust mikil vandræði
út af því, hvað gera ætti við lík-
kisturnar. Hvað sem öðru leið,
þá var ekki hægt að grafa stór-
Art" (Hin herteknu listaverk Evrópu)
skýrt frá líkkistufundinum. Er þar
ágæt mynd af tveim skrautsverðum
Friðriks mikla. Segir þar um fund-
inn: „Yfir líkkisturnar höfðu her-
deildafánar prússnesku herjanna ver-
ið hengdir og kringum fánana rað-
að myndum af öllum þýzkum mar-
skálkum frá 18. öld og fram á þenn-
an dag. 1 grafhýsið höfðu líka verið
látnir dýrgripir, konungsdjásn og
sigli Hohenzollernættarinnar, og síð-
ast en ekki sízt hin dýrmætu frönsku
li3taverk úr konungshöllunum í Pots-
dam." Er talið, að þýzka herráðið
hafi staðið að þessu verki. — Þýð.