Úrval - 01.05.1953, Blaðsíða 115
Uppímningamenn . . .
Framhald af 4. kápusíðu.
búa á 4. hæð eða enn ofar. Ég
þekki nokkrar konur sem fá svima
í hvert skipti sem þær sjá glugga-
þvottamann fara út á gluggasillu
til að þvo rúður að utan. Á sýning-
unni sá ég lausn á þessu vanda-
máli. Það er gluggi sem hægt er
að snúa við; hann snýst um ás
í miðjum efri og neðri karmi.
Mest er ég hissa á að engum skuli
hafa dottið þetta í hug fyrr!
Fyrir þá sem vinna úti við voru
ýmis ný áhöld og tæki, t. d. ný
tegund upptökuvélar fyrir kartöfl-
ur; ennfremur skófla sem grefur
ferhyrndar holur; ósköp einföld,
en þó ný hugmynd sem engum
hafði dottið í hug fyrr.
Þarna sá ég strauborð til að
festa á eldhússtól, sem straukona
situr í þegar hún strauar. Enn-
fremur snotra kventösku, sem
varð að rúmgóðri „ráptuðru" þeg-
ar hún var opnuð.
Eins og á öllum svona sýning-
um voru þarna allskonar hreins-
unarefni, fægiefni, sköfur, afhýð-
arar, skerar og brýni, en eitt af
því sem síðast vakti athygli mína,
rétt þegar ég var að fara, var
efni til að búa til úr blöðrur handa
börnum að leika sér að. Kreist var
svolítið af efninu úr túpu og lát-
ið á endann á lítilli blásturspípu.
Þegar blásið var í pípuna, bólgnaði
efnið út I blöðruog mátti móta lög-
un hennar að vild sinni með hönd-
unum. Þegar því er lokið má reka í
hana prjón eða brenna gat á hana
með sígarettu — án þess hún
springi eða falli saman. Hún held-
ur alveg lögun sinni. Götum á
henni má loka með því að þrýsta
saman börmimum með fingrunum,
og hverfur þá gatið. Ótrúlegt? Já,
en maðurinn er hugvitssöm skepna
og mun seint hætta að fá nýjar
og snjallar hugmyndir. Ég er strax
farinn að hlakka til næstu sýning-
ar — kannski verð ég þá búinn að
finna upp eitthvað snjallt sjálfur?
Fleiri nýjungar.
Flauta, sem fest er á hjólbarða
eins og venjuleg lokhetta, gefur
frá sér hvellt blístur þegar þrýst-
ingurinn í hjólbarðanum er kom-
inn niður fyrir það, sem öruggt
er talið til aksturs.
Efni til að leysa upp lakk og
málningu, sem hingað til hefur
aðeins fengizt til notkunar í iðn-
aði, fæst nú í hálfs lítra, lítra og
fjögra lítra ílátum til heimilis-
notkunar. Ef það er borið á lakk-
aðan eða málaðan við, leysir það
alveg upp lakkið eða máining-
una án þess að skaða viðinn.
Sívalur kryddbaukur með sex
hólfum fyrir sex tegundir af
kryddi. Á honum er hreyfanlegt
lok með opi sem hægt er að hafa
lítið eða stórt eftir því hvort um
gróft eða fint krydd er að ræða.
Þarf aðeins að snúa lokinu til að
fá úr bauknum það krydd sem
nota á. Baukurinn er úr glæru
plasti með litfögru loki og botni.
— Science News Letter.