Úrval - 01.05.1953, Page 85
ÞEGAR JÖRÐIN FÆDDIST
83
rákust á, runnu saman og urðu
að æ stærri efnisheildum. Er
frá leið — ef til vill á 100 ár-
milljónum — þéttust kringl-
urnar í plánetur, tungl og hala-
stjömur. 1 kringlunni sem jörð-
in myndaðist úr, þéttist önnur
minni og varð að tunglinu.*
Þannig var jörðin í upphafi
sviplaus efnishnöttur sem
geystist eftir braut sinni. Að
áliti flestra sérfræðinga hlýtur
hún að hafa hitnað upp í glóð-
armark fyrir áhrif þyngdar-
aflsins og núningsmótstöðunn-
ar sem hún mætti á leið sinni
gegnum skýkringluna. Meðan
hún var í bráðnu ástandi sukku
þyngstu frumefnin inn að
kjarnanum en þau léttustu
flutu efst. Síðan tók skorpan
hægt og hægt að kólna.
Á þessu tímabili tóku fyrstu
meginlöndin að myndast. Hvar-
vetna á kraumandi yfirborði
jarðarinnar gusu í sífellu upp
reykský og eldar, og bráðin,
glóandi björg spýttust upp á
yfirborðið. Smátt og smátt
tóku granít- og basaltbjörg að
harðna. Mörg þeirra leystust
upp og sukku, en hér og þar
gnæfðu granítbjörg eins og ís-
jakar upp úr bráðnu hafinu,
uxu að ummáli og dýpt unz þau
jhvíldu á traustum basalt-
grunni.
* Hoyle prófessor heldur fram
öðrum skoðunum um uppruna jarð-
arinnar sbr. greinin „Heimsmynd
Hoyles prófessors" í 3. hefti 10. árg.
— t>ýð.
Ein kenning heldur því fram
að meginlöndin hafi runnið
saman og harðnað þar sem þau
eru nú; önnur telur að þau hafi
kristallast í einum massa, því
næst skilizt að og flotið um
hvel jarðar -—- knúin af snún-
ingsafli jarðar — unz basalt-
grunnurinn festi þau á þeim
stöðum þar sem þau eru nú.
(Ef við iítum á landabréf sjá-
um við að strandlína Ame-
i-íku fellur að ströndum
Evrópu og Afríku eins og
kubbar í myndasamfellu).
Eftir að land hafði skapast
tók sjórinn að myndast. Eftir
að bergið harðnaði byrjuðu
vatnsgufu og kolsýrustrókar
að gjósa upp og mynduðu
vísi að gufuhvolfi. Þessi gufa
safnaðist í geysimikil ský sem
að lokum umluktu jörðina svo
að þar ríkti sífellt myrkur.
Stundum þéttust efstu lög
þessara skýja og mynduðu regn,
er féll niður, en til þess eins að
gufa upp strax aftur. í þúsvrnd
ár eða meira mun sólin ekki
hafa getað sent geisla sína
gegnum þetta biksvarta skýja-
þykkni. En loks rann upp sá
dagur þegar regnið hætti að
gufa upp jafnótt og það
féll. Enginn veit hve lengi
þessi steypiflóð héldu áfram
— ef til vill í aldir. En þegar
skýin tóku loks að þynnast
glömpuðu geislar sólarinnar í
fyrsta skipti á frumhöfum
jarðarinnar.
Iður jarðarinnar héldu áfram