Úrval - 01.05.1953, Page 77
Sainskur læknír sem vinnur að rannsóknum
á offitu við Akademiska sjúkrahúsið í
TJppsöIum, hefur skrifað eftir-
farandi grein —
Um orsakir og afleiðingar offitu.
Grein úr
eftir dr. Niis Brage Nordlander.
AÐ er ekki alveg víst að þér
séuð feitari en vinur yðar
sem er jafnhár og þér en hælir
sér af því að vera 5 kg. léttari.
Þér eruð kannski beinastór og
vöðvamikill, en hann smábein-
óttur og vöðvarýr. Ef þér viljið,
getið þér sannprófað hvor ykk-
ar er í raun og veru feitari.
Af þyngd hæfilega feitrar
manneskju er um 17% fita, en
frá þessu eru mikil frávik, allt
niður í 3% og upp í 50%. Ein-
faldasta ráðið til að reikna út
líkamsfituna er að mæla eðlis-
þyngd líkamans. Eðlisþyngd
mannsins er frá 1,015 upp í
1,080 og er sá munur nær ein-
göngu vegna mismunandi fitu.
Fitan hefur litla eðlisþyngd, 0,5
til 0,6, og sá sem vill grenna
sig verður, jafnframt því að leit-
ast við að létta sig, að keppa að
því að fá sem mesta eðlisþyngd.
I skóla lærðum við að finna
eðlisþyngd eftir lögmáli Arkí-
medesar: með því að sökkva
hlutnum niður í vatn og mæla
það vatnsmagn sem hann ryður
frá sér. Eins er hægt að fara að
við menn. Það er enginn voði
að fara andartak á kaf með höf-
uðið í baðkerið. Hvernig þér
getið síðan reiknað út eðlis-
þyngd yðar er skýrt í ramma-
klausunni á næstu síðu.
Komi nú í ljós að eðlisþyngd-
in sé minni en 1,070 og líkams-
fita yðar sé því meiri en 17%,
þá er hollt fyrir yður að staldra
við. Því að það er hættulegt að
vera of feitur; jafnvel aðeins
fáein kíló fram yfir eðlilega
þyngd hafa í för með sér aukna
áhættu fyrir heilsuna. Án þess
að ýkja má telja offitu versta
óvin þjóðarheilsunnar. Offeitt
fólk fær átta sinnum oftar syk-
ursýki, 3—6 sinnum oftar of
háan blóðþrýsting, 2—3 sinnum
oftar æðakölkun og slitgigt í
liði. Gallsteinar og æðastíflur
eru miklu algengari hjá feitum
mönnum en mögrum. Verst er
að offita er mjög algengur sjúk-
dómur. Um fjórðungur af íbú-
um Svíþjóðar verður að teljast
offeitur, og af konum eldri en
45 ára er helmingurinn of feit-
ur. Fyllsta ástæða er til að leita
orsakanna að þessum sjúkdómi
og ráða til að lækna hann.