Úrval - 01.05.1953, Page 9

Úrval - 01.05.1953, Page 9
HANS FALLADA ir og fíngerðir. Hann hefði sýnt fram á, að það er rangt að krefja unglingana ábyrgðar á afbrigðilegum eiginleikum, sem við góð skilyrði gætu orð- ið mannkyninu til gagns og gleði. Hann hefði lýst fyrir mönnum hinum ævafornu, sið- lausu venjum í þessu landi, þar sem austrið og vestrið mætast, og sýnt fram á, að það leiðir til ófarnaðar, þegar foreldrar og þjóðfélag taka að móta eðli harnsins með harðneskju og til- litsleysi. Hann hefði getað, ef svo mætti segja, grip- ið fram fyrir hina brjálæðis- kenndu þróun uppeldismálanna undir stjórn nazista, sem mið- aði að því að ala upp hrotta- skap í æskunni . . . Hann hefði .getað umskapað Þýzkaland. * Eins og allir, sem dæma eftir ytri ásýnd, taldi hann fangelsis- vist sína aðeins stafa af laga- brotum. Lögin taka yfirleitt aðeins tillit til athafna ein- staklingsins. Hann braut ekki lengur heilann um hið mikil- væga orsakasamhengi langt aftur í tímann, allt til þess, er einstaklingurinn mátti sín einskis gegn fjandskap um- hverfisins, kæruleysi og ábyrgðarleysi hinna fullorðnu. í siðferðilegri sjálfsafneitun sinni afsalaði hann sér skálda- köllun sinni. Hann ætlaði að láta sér nægja að setja sam- an bækur, vinna sér inn pen- inga og sýna að hann gat lif- að heiðarlegu lífi. Svo beygð- ur var Hans Fallada orðinn, að hann gerði sig ánægðan með þetta. Fyrsta bókin, sem hann samdi nú var dómsskýrsla í skáldsöguformi og gerist í sveitinni í Holstein. Næsta bókin er: „Hvað nú, ungi mað- ur?“ Þetta er saga kreppu- og atvinnuleysisáranna kringum 1930 — í senn ísmeygileg og áhrifarík, viðkvæmnisleg og raunsæ — Chaplin í þýzkri útgáfu. Hún hitti beint í mark, ef dæma má af rit- dómunum. Sjaldan hefur út- gefandi haft minni ástæðu til að iðrast góðverks. Bókin seldist í einu vetfangi í 200000 eintökum á þýzku og var þýdd á 16 önnur mál. Peningarnir streymdu að, og kjör Fallada breyttust úr örbirgð í auðæfi, hann hafði nú fengið vottorð um að hann væri aftur fínn maður. Ætt hans minntist þess nú með ánægju, að hann væri til, og sjálfur skemmti hann sér stundum við það þegar hann kom inn í veitingahús að bjóða öllum sem þar voru upp á ókeypis veitingar. En áður en þessi nýfengnu auð- æfi yrðu að engu, keypti hann sér eyðibýli við vatn eitt í fögru héraði í Suður-Mecklen- burg. Þetta var sannkallað óskaland. Þarna reisti hann ný hús og kom sér upp lista- mannsheimili. Hinni frjósömu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.