Úrval - 01.05.1953, Page 25

Úrval - 01.05.1953, Page 25
FISKIVEIÐAR MEÐ TÖMDUM SKÖRFUM 23 hann minnti mig dálítið á prest í stólnum — væri hans sæti með öllum rétti, að háttum og venju skarfaveiðistarfsins; ef einhver hinna reyndi að bola honum frá, fékk hann að kenna á því. Gamli formaðurinn fræddi mig á því á skemmtilegan hátt, að meðal fiskiskarfanna eru strangar reglur um röð og for- réttindi. Hver fugl í þessum flokki hét ákveðnu nafni, rað- tölunafni hvers um sig á jap- önsku — Ichi, Ni, San (fyrsti, annar, þriðji o. s. frv.), og hver þekkti sitt nafn. „Ichi“ var að sjálfsögðu illfyglið á hníflin- um; hann var síðast settur til veiða og látinn hætta fyrstur, strokinn og tensaður til og hon- um gefinn mestur og beztui fiskur. Hinir settust á borð- stokkinn eftir vissri röð; ef ein- hver fuglanna var ekki á rétt- um stað, hjuggu þeir næstu til hans, þangað til hann komst á sinn rétta stað. Ég hélt fyrst að gamli maðurinn væri að segja mér þetta í glettni, en seinna gafst mér tækifæri til að sjá marga „slagi“ milli fugl- anna, ef virðingu einhvers var misboðið, og sá þá að hann sagði satt. Ekki er hægt að segja að skarfar séu fallegir fuglar, þeir eru nokkuð margháttaðir að útliti, en flestir dökkgráir að lit með langan, sveigjanlegan háls, og er skinnið á honum ákaflega teygjanlegt, svo þeir geta auðveldlega gleypt fisk, sem er talsvert gildari en háls þeirra. Nefið er langt og sterkt, — eins og ég hafði þegar feng- ið að kenna á. Auk okkar tveggja, voru tveir hásetar á bátnum, unglingar, sem stjökuðu bátnum, annar í skutnum en hinn miðskipa. Eftir að við höfðum ýtt frá landi, bar lygn straumurinn okkur hægt niður ána. Fram úr bátnum skagaði jámstöng og á enda hennar var eldstó eða blys, er lýsti upp vatnið fram undan bátnum. Reykurinn af eldinum virtist ekki valda ,,Ichi“ neinum óþægindum. Klukkan var nærri sjö og tunglskin var ekki þessa nótt — einmitt beztu aðstæður fyrir skarfafiski. Eg stóð í bátnum við hliðina á formanninum, í rauðum bjarmanum frá blys- inu, og mér fannst hann vel málhreifur. Hann hafði varpað af sér hinu venjulega fálæti, undir eins og við vorum komnir á stað og þurfti lítið að hafa fyrir að fá hann til að tala endalaust um skarfa og skarfa- fiski. Hann var auðheyranlega skarfafiskimaður af lífi og sál og bjó yfir miklum og skemmti- legum fróðleik um þessa starfs- grein. Hann sagði mér að skarfa- fiski hefði tíðkast hjá Japön- um í meira en þúsimd ár og hjá Kínverjum ennþá lengur. Skarf- ar þeir sem notaðir eru, eru veiddir á Kyrrahafsströndinni með tálfuglum. Eftir að fuglinn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.