Úrval - 01.05.1953, Side 54

Úrval - 01.05.1953, Side 54
52 ÚRVAL minn, sjá illan endi á fyrirætl- un, sem þér tókust á hendur af göfugmennsku yðar í þágu almennings; og það hefur mik- il áhrif á mig hvernig þér bregðist við tíðindunum . . . En þeim, sem kynnu að vilja koma með ásakanir, skal tjáð að ég hafði í raun og veru lok- ið ætlunarverki mínu . . . Mér hafði lánast að safna um borð öllum plöntum mínum í bezta ásigkomulagi . . . Ég neitaði mér jafnvel um að taka með varning til eigin þarfa, lét kasta fyrir borð hænsnabúr- unum og öllum þægindum. Eg lét refta hluta af lyftingunni og kom þar fyrir plöntum sem ég gladdi augu mín við á hverjum degi.“ Þrátt fyrir þessi hörmulegu endalok hélt Banks tryggð við Bligh. Skömmu eftir að upp- reisnarmennirnir höfðu verið dæmdir í október 1790, bað Banks ráðuneytið um styrk til nýrrar ferðar, og í desember 1790 fékk hann styrk til ann- ars brauðaldinleiðangurs. Bligh var aftur valinn fararstjóri og fékk í þetta skipti freigátuna Providence sem var nokkuð stærri en Bounty. Fylgdar- skip hennar skyldi vera vopn- að briggskip, Assistance. Tveir garðyrkjumenn frá Kewgras- garðinum, James Wiles og Christopher Smith, fóru einnig með. Lagt var af stað 3. ágúst 1791 og siglt fyrir Góðravonahöfða. Bligh kom til Tasmaníu S. febrúar 1792 og gróðursetti þar tré og jurtir eins og áður. Til Tahiti komu bæði skipin 8. apríl 1793. Þeir fengu ágætar móttökur. Ráðstafanir voru gerðar til að útvega brauð- aldintré. Wiles og Smith byggðu skýli á ströndinni til þess að geta haft plönturnar í skugga meðan verið var að setja þær í potta. Eftir að þær höfðu fest rætur voru þær fluttar um borð. Eftir þriggja mánaða viðdvöl skrifaði Bligh: „Allar plöntumar eru nú í bezta ásigkomulagi og breiða skemmtilega úr blöðum sínum. Ég hef látið gera þeim loft- góðan stað í lyftingunni og í stafni og skut og mun sigla með fullhlaðið skip.“ Þann 18. júlí, daginn sem lagt var af stað, skrifaði hann: „Varlega áætlað höfum við meðferðis: 2126 brauðaldintré, 472 aðrar plöntur og 36 fágætar plöntur — alls 2634.“ Siglt var vestur, meðfram Fijieyjum og komið að strönd Nýju Guineu 27. ágúst. Fram- undan var hættuleg sigling gegnum Torresundið milli Astralíu og Nýju Guineu. Bligh skrifaði: „Ástand plantn- anna verður alvarlegra með hverjum degi; margar eru dauðar og útlitið er ótryggt . . . Það er óumflýjanleg nauð- syn að takmarka við þær vatn, svo að nóg vatn verði handa skipshöfninni ef okkur tekst
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.