Úrval - 01.05.1953, Síða 72
Samtal við «.nna,n uppfinnmg'a-
mshu antabuslyfsins.
Drykkja og ofdrykkja.
TJr „Verden Idag“,
eftir Knud Bye.
DÖNSKU vísindamennirnir
dr. Hald og dr. Erik
Jacobsen, sem fundu upp of-
drykkjulyfið antabus, hafa
haft mikla ánægju af uppfinn-
ingu sinni, sem hefur farið
sigurför um heiminn síðan
efnasamsetning þess varð kunn
fyrir fimm árum. Allstór hluti
þeirra sem fengið hafa lyfið
hafa læknast. — En hve mikið
þarf eiginlega til þess að menn
fari yfir skynsamleg takmörk í
umgengni sinni við áfengi ?
Getur ekki hver og einn geng-
ið úr skugga um það sjálfur
hve mikið hann má drekka án
þess að bíða tjón af því?
„Þegar ég skrifaði bók mína
„Meðferð áfengis“ (Omgang
med alkohol) útbjó ég spum-
ingalista. Þeir sem svara þess-
um spurningum af einlægni fá
með því nokkra vísbendingu
um hvar þeir standa,“ segir dr.
med. Erik Jacobsen. „Svarið
eftirfarandi spurningum eftir
beztu samvizku:
1. Álítur konan yðar að þér
drekkið of mikið?
2. Álítið þér að glas af áfengi
bæti andleg og líkamleg afrek
yðar?
3. Eigið þér erfitt með að
neita þegar yður er boðið aft-
ur í glasið?
4. Fáið þér yður oft eitt eða
tvö staup í vinnutímanum ?
5. Eyðið þér meira fé í
áfengi en til að þjóna andleg-
um áhugamálum yðar — kaup-
ið þér frekar eina flösku en bæk-
ur, blöð, leikhúsmiða o. s. frv. ?
6. Kemur það fyrir oftar en
tvisvar á ári, að þér fáið yður
frekar öl, snaps, viskí, gin eða
portvín í staðinn fyrir kaffi
með hádegisverðinum ?
7. Þjáist þér af langvinnri
magabólgu ?
8. Eruð þér hrottalegur við
konu yðar og börn þegar þér
eruð drukkinn?
9. Sitjið þér stundum í vín-
stofu eða veitingahúsi þegar
yður finnst ótvírætt að þér
ættuð að vera við vinnu yðar?
10. Hafið þér stundum setið
aleinn að drykkju heima hjá
yður?
11. Drekkið þér meira nú en
fyrir einu ári?
12. Kemur það oft fyrir að
þér komið ekki heim til kvöld-
verðar og látið ekki konuna yð-
ar vita um það?