Úrval - 01.05.1953, Page 93

Úrval - 01.05.1953, Page 93
HVARF KRÝNINGARSTEINSINS 91 lengi verið krýningarhásæti kelt- neskra konunga, en árið 1296 var honum rænt með báli og hrandi úr Sconekirkju, af Ját- varði I. Englandskonungi, sem tók steininn frá Skotum, af því að hann var frelsistákn þeirra. Því eiga Skotar ekki auðvelt með að gleyma. Þegar Robert Bruce hafði leitt baráttu Skota til sig- urs, var það einn af skilmálum friðarsamninganna, að krýning- arsteininum yrði skilað aftur. En þetta var aldrei efnt og steinn- inn var kyrr í Westminster Ab- bey. En í nóvember 1950 var ég búinn að ákveða með sjálfum mér, að ég skyldi ná steininum. Ég fékk mér til aðstoðar ungan mann, sem ég ætla að kalla Neil, og síðan fórum við að gera áætlanir um leiðangurinn. Við vonuðumst til að geta afrekað eitthvað, sem getið yrði í sagn- fræðibókum, og sem myndi á- reiðanlega kosta okkur dvöl í enskum fangaklefa. Um miðjan nóvember lagði ég leið mína í Mitchellbókasafnið í Glasgow og náði mér í allar þær bækur, sem fjölluðu um West- minster Abbey og krýningar- steininn. (Á endanum voru það bókasafnsspjöldin með nafninu mínu, sem voru eina örugga sönnunargagn _ lögreglunnar gegn mér). Eg las lýsing- ar og sögulegar frásagnir, at- hugaði ljósmyndir, gerði upp- drætti og áætlanir. Þegar þessu var lokið, fór ég á fund kaupsýslumanns eins í Glasgow og bað hann um 50 sterlingspund upp í kostnaðinn við leiðangurinn (heildarkostn- aðurinn átti ekki að fara yfir 70 pund). Þegar hann sá, að mér var alvara, var hann fús til hjálpar. Hann kynnti mig Ro- bert Gray, sem var einn af borg- arstjórafulltrúum Glasgowborg- ar. Bæði kaupmaðurinn og Gray höfðu áður verið riðnir við ár- angurslausar tilraunir til að end- urheimta steininn. Þeir gáfu okkur margar góðar ráðlegg- ingar. Eina nótt brá ég mér til Lon- don í njósnarferð. Þegar lestin fór yfir landamærin, varð ég gripinn ákafri geðshræringu. Mér varð hugsað til þess að for- feður mínir frá Clydesdale höfðu margoft farið þessa sömu leið, þegar þeir voru að verja heiður Skotlands, eða fara í ránsher- ferðir. En enda þótt för mín hefði ekki annan tilgang en að endurheimta einn stein, þá sagði mér svo hugur um, að forfeð- ur mínir myndu ekki blygðast sín fyrir mig. Þegar ég kom til London, morguninn eftir, óx taugaæsing mín um allan helming. Það var hrífandi tilfinning, að vera staddur í háborg Englands, ekki sem ferðamaður, heldur sem njósnari. Eg slóst í för með ferðafólki, sem var að skoða Westminster Abbey, og var góða stund inni í hljóðum og hálf- rökkvuðum helgidóminum. Ég
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.