Úrval - 01.05.1953, Side 116
Uppfinningamenn sýna hugvit sitt.
Úr „London Calling".
eftir Tom Masson.
Hefur þú nokkumtíma fundið
upp nokkuð — hlut, áhald, eins-
konar vél eða undraefni, tæki til
að vinna eitthvert verk fljótar og
betur en áður? Margir fá öðru
hverju snjallar hugmyndir; öllu
færri komast svo langt að fullgera
nothæft módel af uppfinningunni
— eða sækja um einkaleyfi á henni
— og miklu færri koma henni á
markað. En jafnvel eftir að hún
er komin á markað getur hún
brugðist öllum vonum. Á móti
hverjum einum uppfinningamanni
eins og Edison eða Marconi sem
verður ríkur og frægur, eru þús-
undir sem deyja í fátækt, tugir
þúsunda sem aldrei fá nema
nokkra vasaskildinga fyrir allar
afurðir snilligáfu sinnar og nokk-
ur hundruð sem haft geta sæmi-
lega ofan af fyrir sér.
Það er til félag uppfinninga-
manna í Bretlandi — Stofnun
einkaleyfahafa (Institute of Pa-
tentees) — sem gætir hagsmuna
þessara hugvitsmanna. Þetta fé-
lag hefur haldið sýningu í Lon-
don með það fyrir augum að vekja
athygli almennings á hugvitssemi
félaganna — og væntanlegra
framleiðenda á uppfinningum sem
enn eru ekki komnar á markað.
Margar uppfinningarnar á þess-
ari sýningu eru tengdar heimilis-
störfum, sprottnar af þeirri ósk
að létta húsmóðurinni störfin.
Flestar konur þvo enn þvottinn
sinn heima og þurrka hann úti á
snúrum að húsabaki. Ég hef horft
á konur ganga fram og aftur milli
þvottakörfimnar og snúrunnar,
taka eitt eða tvö stykki í einu og
hengja þau síðan á snúruna. Nú
hefur einhver fundið upp körfunet
— einskonar háf sem konan hengir
í ól um hálsinn: Það eru raunar
þrír háfar, einn stór sem hangir
framan á maganum og er fyrir
stór stykki, og tveir minni á báð-
um síðum fyrir klemmur og smá-
stykki. Þannig getur húsmóðirin
gengið að snúrunni með báðar
hendur frjálsar og hengt upp
þvottinn sinn á miklu skemmri
tíma en áður, og án þess að bogra.
Húsmóðir hefur fengið þá
snjöllu hugmynd að setja hita-
element i bakkann undir upp-
þvottagrindinni við eldhúsvaskinn,
svo að leirtauið þornar jafnóðum
og það er lagt á grindina — og
losnar hún þannig við að þurfa að
nauða í eiginmanninum að hjálpa
sér við uppþvottinn.
Eitt af þvi sem mörgum hús-
mæðrum, er búa í stórum sambýl-
ishúsum, er áhyggjuefni er glugga-
þvotturinn — einkum þeim sem
Framhald á 8. kápusíðu.
STEINOÓRSPRENT H.F.