Læknaneminn - 01.04.1994, Page 94
Mynd 3. Þrýstingsloftbrjóst í vinstra brjóstholi með hliðrun á líffœrumyfir til hœgri. Astunga með grófri nál
geturverið lifsnauðsynleg.
skyndilegs brjóstverks. Þetta kemur fyrir hjá fólki á
öllum aldri, en í eldri aldurshópum sést þetta oftast
hjá sjúklingum með króníska lungnasjúkdóma.
Loftbrjóst án sýnilegs lungnasjúkdóms erhins vegar
sjúkdómur yngra fólks, sérstaklega karla, en hlutfallið
milli karla og kvenna er 6/1.
Verkur er yflrleitt hliðlægur og versnar við
hreyfingu og innöndun líkt og takverkur vegna bráðrar
fleiðrubólgu. Hann byrjar oftast mjög skyndilega með
sárum sting. Sé lekinn mikill fylgir andþyngsli og
mæði. Viðsvokallaðþrýstingsloftbrjóst,þarsem loft
kemst inn í fleiðruna við innöndun en ekki út aftur,
eykst þrýstingur inni í brjóstholinu jafnt og þétt og
lungað fellur saman og veldur hliðrun á miðmæti og
líffærum þess. Þessu fylgir mikil andnauð og mæði og
er lífshættulegt ástand (mynd 3).
Il-D. Sjúkdómar í miðmœti (Mediastinum)
Sjúkdómar í miðmæti geta orsakað verk sem er
yfirleitt undirbringubeini,enleiðirgjamanuppíháls
og aftur í bak. Einnig getur hann leitt út í báða
handleggi. Sé um ertingu á fleiðru að ræða,versnar
þessi verkur við innöndun. Ein algengasta ástæðan er
illkynja æxli og aðdragandi verks þá gjarnan langur.
Bráðar sýkingar með skyndilegum verk undir
bringubeini koma þó fyrir, t.d. við leka frá sprungnu
vélinda eða í kjölfar lungnasýkingar.
III. SJÚKDÓMAR í VÉLINDA
A. Bólga í vélinda
B. Vélindakrampi
C. Götun á vélinda
III-A. Bólga í vélinda (Oesophagitis)
Bólga í vélinda er algeng orsök brjóstverks.
Astæðan er yfirleitt bakflæði á súram meltingarvökva
magans upp í vélinda vegna starfrænnar traflunar á
vöðvum í neðsta hluta vélindans og þindarslits. Þetta
veldur sviðatilfinningu undir bringubeini,
svokölluðum brjóstsviða sem er mismunandi mikill
og getur orðið að sáram verk. Þessi tilfinning leiðir
stundum upp í háls og út í handleggi og getur því líkst
hjartaöng. Oft fá sjúklingar með þindarslit súran
magavökva upp í munninn (nábít) og uppköst geta
fylgt. Þessi einkenni eru yfirleitt verst eftir máltíðir,
sérstaklega stórar máltíðir og oft era særindi og
erflðleikar við kyngingu. Einkenni eru verri ef
sjúklingurliggurflatureðabograren lagast íuppréttri
stellingu. Sýrubindandi lyf slá yfírleitt vel á þessi
einkenni.
Eins og áður segir er staðsetning verks og Ieiðni sú
sama og við hjartaverk og getur oft verið erfítt að
greina þama á milli. Sérstaklega þegar haft er í huga
að sjúklingar með bólgu í vélinda geta fengið samdrátt
í vélinda sem nítróglýcerín slærá eins og við hjartaöng.
84
LÆKNANEMINN 1 1994 47. árg.