Skírnir - 01.01.1859, Side 104
106
FRÉTTIR.
itftli'n.
en rústir einar, ebr þá í mesta lagi kirkjur nokkrar, er reistar hafa
verib upp af höllum og hofum og öíirum skrauthýsum Rómverja.
En þó er annaö enn breyttara, og þaS eru mennirnir er landií)
byggja; nú er enginn herkonúngr framar til á Italíu, er haldi sigr-
hrós yfir fjarlægum þjóöum; enginn víblendr stólkonúngr, er heimti
skatt af fjarlægum undirlöndum sínum. Rómverjar hafa löngu siílan
slibrab sigrsverb sín og fest upp herskildi þá, er þeir báru forijum
hátt yfir abrar þjóbir; þeir tóku upp aptr trúarsverb og trúarskjöld
og skutu bannfæríngaskeytuni gegnum hugrökk hjörtu fólkdjarfra
þjóÖkonúnga. Bylr bannsetnínganna er aí) vísu af stabinn, og bann-
söngvar meb hríngdum klukkuin og steyptum kertum berast eigi framar
til eyrna vorra. En eptir er þó „páfi at Róma og patríarki”, er
enn standa „íklæddir herskrúfea ljóssins” og veifa enn sigrsverbi
trúarinnar yfir víöa veröld. í sannleika væri Ítalía libiil sem ljós
úr sögu mannkynsins nú á tímum, ef eigi væri páfi í Róm og
kaþólsk trú í flestum löndum í heimi. Lúter og Kalvín hafa ab
vísu höggvib þab skarb í trúarveldi páfa, er vér vonum aí) seint
muni fullt verba; en menn skyldi þó eigi dyljast þess, a& kaþólsk
trú eflist meir nú á dögum en hinn nýi sibr Lúters og Kalvíns.
Veraldleg stjórn páfa er hin aumlegasta, því hann hefir herlib frá
Frakklandi og Austrríki til a& halda ríki sínu saman, en þó er hann
eigi ab si'br yfirmabr allra ítala. Eptir því sem allir kunnugir menn
segja, skerast ítalir einkum í tvær sveitir. I öbrum flokknum eru
múgfrelsíngjar, þeir er fylgja Mazzíní og hans nótum, er vilja frelsa
múginn frá yfirráíium höfbingjanna, af taka alla stjórnendr, en steypa
öllum ítölum saman í eitt ríki; þessu vilja þeir fram koma meí)
uppreist um endilanga Ítalíu, þeir vilja meí) vopnum vega, og verbi
þeim sigrs auöib um stund, þá munu þeir meb vopnum stjórna og
a& lyktum vopnbitnir veröa. Hinn flokkrinn er kaþólski flokkrinn
e&r páfaflokkrinn, er auka vill trúarveldi páfa og kennidómsins, er
hugsar lítt um a&ra hagi manna en hin andlegu efni; flokkr þessi
treystir byssubroddum Austrríkismanna, til a& hálda óeirbarmönnum
öllum í skeQum, ogtrúarljóma páfadómsins til a& beygja hug og hjarta
Austrríkis keisara og annarra fleiri stólkonúnga til hjálpar sér í
stjórnarefnum. Flokkr þessi er miklu fjölmennari og fylla hann
flestir málsmetandi menn á Ítalíu, enda á kenníng hans og áform