Andvari - 01.03.1968, Síða 17
ANDVARI
KRISTINN ÁRMANNSSON REKTOR
15
frönsku í 6. bekk. Kveður Kristinn svo að orði um hann: „Er óhætt að
segja, að hann hafi verið hvers manns hugljúfi, bæði nemenda og kenn-
ara, sakir Ijúfmennsku sinnar og lipurðar."
Pálmi Pálsson kenndi Kristni íslenzku í öllum bekkjum frá 1. bekk
og upp úr. Kunni Kristinn vel að meta hann bæði sem mann og kennara.
Þorleifur H. Bjarnason kenndi Kristni latínu og sögu. Bar Kristinn
djúpa virðingu fyrir þessum samvizkusama drengskaparmanni, sem í engu
mátti vamm sitt vita og bar hag nemenda sinna mjög fyrir brjósti.
Jón Ofeigsson hafði byrjað að kenna við skólann árið 1911. Kristni
kenndi hann þýzku og dönsku. Jón Ofeigsson var tvímælalaust einn allra
fremsti kennari skólans um sína daga hæði fyrir sakir lærdóms og frá-
bærra kennarahæfileika. Hefur hann orðið ógleymanlegur öllum nemend-
um sínum. Er mér kunnugt um, að Kristinn mat hann mikils, enda hafði
hann kynnzt þessum ágæta hæfileikamanni bæði sem nemandi hans og
síðar sem samstarfsmaður. Bar hvergi skugga á þau kynni.
Böðvar Kristjánsson kenndi Kristni ensku. Böðvar var mjög ástsæll af
nemendum sínum, sem jafnan hafa lokið á hann miklu lofsorði. Varð
hann öllum, sem hann þekktu, mjög harmdauði, er hann andaðist aðeins
tæpra 37 ára að aldri árið 1920. Ekki hefui það spillt fyrri vinsældum
hans meðal nemenda, að hann var enn svo ungur, að hann hefur átt auð-
veh með að hlanda geði við æskumenn skólans.
Ólafi leikfimikennara Rósinkranz galt Kristinn mikið lof. Sagðist hann
hafa haft mjög gaman að leikfimi og sótt leikfimitímana vel, þó að mis-
hrestur vildi verða á tímasókn þar hjá ýmsum. Taldi Kristinn sig hafa
haft mjög gott af þessunr leikfimiiðkunum og þakkaði þeim góða heilsu,
þrátt fyrir miklar kyrrsetur, því að síðustu árin í skóla var hann farinn
að kenna talsvert með náminu.
Bjarni Sæmundsson kenndi Kristni náttúrufræði, en Sigurður Thor-
oddsen stærðfræði. Þó að Kristinn rækti nám í öllum greinum samvizku-
samlega, þá verður ekki sagt, að hann hafi haft verulegan áhuga á náttúru-
træði. Stærðfræði fór hann að hafa gaman að síðustu árin í skóla. En báða
þessa kennara, er fyrr voru nefndir, kunni hann að meta að verðleikum,
enda voru þeir alþjóð kunnir fyrir merkileg störf hvor á sínu sviði.
En nú er ótalinn sá kennari Kristins, sem sennilega hefur mestu um
það ráðið með áhrifum sínum og kennslu, að hann síðar afréð að leggja