Andvari - 01.03.1968, Page 180
178
ÓLAFUR M. ÓLAFSSON
ANDVARI
nema hann ali sjálfur óðali sínu þann nið, er komi eftirlifandi systkinum að
fullu í stað látins bróður. En Egill telur sig ekki hæfan til barngetnaðar (4. v.).
Skaðinn er því óbætanlegur.
17. visa
og fyrri hluti 18. visu.
Þjóða sinni erumka þekkt, þótt sér hverr of haldi sýtt. tíyrr, sonr kvánar, es
kominn í hýskips hœ leita kynnis. En í þokk fostum stendr hrosta hilmir fánst
á hendi mér.
þjóða sinni.
þjóðir: menn,
sinni (föruneyti) manna, þ. e. samtímamenn Egils, sem bann átti samleið
með: samferðamenn.
þekkt, bdr. þokt. Sbr. so (K, 19. lv. Eg.) f. se (M, W); klot (K, 25. lv. Eg.)
f. klett(i) (M, W); lot (K, 26. Iv. Eg.) f. let (M, W).
hyrr = hurr (sonur) með i-hljóðvarpi. Þessi einkennilega orðmynd á sér hlið-
stæðu í Völuspá Konungsbókar (byrir, 59. v.). Vera mun samband að þessu leyti
milli Sonatorreks og Völuspár, og verður að því vikið síðar.
hyrr, sonr kvánar. Með þessum orðum leggur skáldið ekki aðeins áherzlu á,
að ástmögurinn hafi átt merka móður, heldur og, að hann leiti kynnis jafnt
meðal ættingja móður sem föður.
býskips hœr.
hýr: byggð,
skip (farartæki) hennar: vagn (Sbr. vagn í skipskenningum.) = vagn
(stjörnumerki),
hœr vagns, þ. e. byggð stjarnanna: biminn (Sbr. vagnhraut, Obarr. 1, vagna
hól, Gd,8 15, o. 11).
Eins og kunnugt er, eru vagnar tveir meðal stjörnumerkja: vagn (= meiri
birna) og kvennavagn (= minni birna). I fornum heimildum (Sjá Alfræði íslenzk
II, Rímtgl, 104,—105. og 249.—250. bls.) eru þessi stjörnumerki nefnd í sömu
andránni og pólstjarnan, leiðarstjarna víkinga yfir Atlantshaf, enda er pólstjarnan
— a. m. k. nú á dögum — oft talin til kvennavagns (minni birnu).
Ef nokkurs staðar örlar á kristnum bugmyndum í Sonatorreki, þá er það í
kenningunni hýskips hœr: biminn (bimnaríki).