Andvari - 01.03.1968, Blaðsíða 26
24
JÓN GÍSLASON
ANDVARI
Fjárveitinganefnd slcilaöi svofelldu áliti um þetta mál1): „Nefndin
leggur til, að launaupphæðin til fastra hennara menntaslcólans verði hælckuð,
með það fyrir augum, að cand. mag. Kristinn Ármannsson verði ráðinn
fastur kennari. Þessi maður lauk kennaraprófi í Danmörku næstliðið sumar
í latínu, grísku og ensku. Bauðst honum þá þegar álitleg kennarastaða í
Danmörku, en hann hafnaði henni vegna tilmæla frá þáverandi forsætis-
ráðherra, sem óskaði eftir, að hann tækist á hendur kennslu við mennta-
skólann. Var hann síðan ráðinn til skólans frá 1. okt. 1923 til jafnlengdar
1924 með hyrjunarlaunum adjunkta. Nú hefur þessi maður óskað eftir,
að honum væri tryggð til frambúðar þessi kennarastaða, og hefur rektor
skólans mælt eindregið með því. Telur hann skólanum rnikla nauðsyn að
fá hann sem fastan kennara, bæði vegna þess að hann sé einkar álitlegur
kennari, og auk þess hafi hann lokið mjög góðu embættisprófi í þeim nárns-
greinum, er skólanum sé mest þörf á nýjum kennara í. Nefndin telur rétt
að sinna þessari málaleitan, bæði vegna þess að þetta er beint áframhald
af því, sem þegar er húið að gera, og einnig af því að maðurinn hefur
sakir þessara ráðstafana afsalað sér annarri stöðu, sem þó er betur launuð
en embætti það, er hann fær við menntaskólann."
I fjárveitinganefnd voru að því sinni Jóhannes Jóhannesson, form.,
Hjörtur Snorrason, fundarritari, Guðmundur Olafsson, Einar Árnason og
Ingibjörg H. Bjarnason. Undirrituðu þau öll nefndarálit þetta.
Á þessu sama þingi urðu miklar umræður út af þingsályktunartillögu
frá Jónasi Jónssyni urn takmörkun á tölu nemenda í lærdómsdeild Hins
almenna menntaskóla. Var emhætti Kristins Ármannssonar dregið inn í
þær umræður. Komst Jónas Jónsson svo að orði um það efni: ,,Og þá var
enn einurn kennara bætt við nú í haust sem leið, með sömu kjörum,
manni, sem að vísu er mjög duglegur kennari, en þó er sá ljóður á þessum
ráðstöfunum, að á þennan hátt eru ný embætti stofnuð, án heimildar
Alþingis."2)
Þessari ádeilu svaraði Sigurður Eggerz svo: „Ég tek hér til rnáls út af
því, sem hv. 5. landskj. (J. J.) sagði um að ég hefði stofnað í haust nýtt
embætti við menntaskólann. Hann mun hafa átt þarna við það, að Kristni
1) Alþingistíðindi 1924, A, bls. 705.
2) Alþingistíðindi 1924, C, bls. 193 o. áfr.