Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1988, Side 142

Andvari - 01.01.1988, Side 142
140 MATTHlAS VIÐAR SÆMUNDSSON ANDVARI merkingardeilda. Stundum birtist hann í skyndilegum hvörfum, rofi, snöggum umskiptum. í öðrum tilvikum var hann hægur og stigbundinn eða þá aftur- hverfur og framsækinn á víxl. í skáldsagnagerð þessa tíma er Guði steypt af stóli. Ekki aðeins í þeim skiln- ingi að lýst sé yfir dauða almættisins eða heimspekilegar umræður fari fram heldur mynda nýjungar í hugarfari og frásagnartækni óguðfrœðilegt rými innan skáldsögunnar. Heimurinn er eins og holaður að innan, gerður ankanna- legur og áttlaus án þess að framandleikinn sé skýrður. Skáldsagan er guðfræði- leg á meðan orðræða höfundar drottnar yfir frásögninni og raust hans yfirgnæfir aðrar raddir. Hún er guðfræðileg á meðan formgerðin felur í sér eftirfarandi atriði: höfund sem fellir efnivið sinn í lokað form og notar hann til að lýsa sjálf- um sér — hugsun sinni, markmiði, boðskap. í slíkum tilvikum eru persónurnar ekkert annað en leikbrúður sem lúta vilja herra síns. Hann drottnar yfir textan- um líkt og einvaldur skapari með alla þræði í sinni hendi. Slík skáldsaga felur loks í sér óvirka lesendur. Staða þeirra gagnvart textanum er svipuð og á milli höfundar og persóna. Þessi formgerð tekur að hrynja á umræddu tímabili. í fjölmörgum skáldsög- um er skýrt frá lausn dulvitaðra óska eða hvata, brjáluðu lífi, uppreisn gegn höfuðsannindum en um leið er skapað nýtt jafnvægi með afturhvarfi eða sýnd- araðlögun. Heiminum er kippt í lið Hamlets. Tregðulögmálið sigrar. í öðrum tilvikum er gengið mun lengra. Andstaðan rík gegn kyrrstæðri, lokaðri formgerð. Vefarinn miklifrá Kasmír er gott dæmi um það. í skáldsögunni tak- ast á ósamrýmanleg snið án niðurstöðu, heimspekileg kerfi leysa hver önnur upp jafnframt því sem viðteknar málfars- og myndmálsreglur eru brotnar. Fjallað er um stærstu ráðgátur lífsins, jaðaraðstæðum lýst, takmörkum sjálfs- vitundar, tungumáls og menningar. í skáldsögunni eru andstæðar skoðanir settar fram og komið í veg fyrir ótvíræðan skilning eða vafalausa túlkun. Text- inn lýsir ekki með óyggjandi hætti líkt og fyrrum því að táknmyndir hafa glatað festu sinni. Eðli hins sagða er stöðugt dregið í efa og boðið upp í dans við aðra valkosti. Staða söguhöfundar hefur og breyst því nú er eins og hann sé á valdi textans, staddur í iðunni miðri ásamt persónum sínum, sundurtættur milli and- stæðra sjónarmiða. Raust hans er orðin að rödd meðal annarra radda. í skáldsögu Halldórs Laxness sundrast hið heildstæða sjálf 19du aldar og verður að safni mótstæðra skoðana og sundurleitra óska eða hvata. Með sög- unni er að vissu leyti tekinn upp þráður 18du aldar þótt undarlegt kunni að virðast. Fræðimenn hafa bent á að í bókmenntum þeirrar aldar sé oft lýst sundruðu sjálfi sem ekki verði hamið í rökrænu formi persónuleika16. Hérlend- is er Ólafs saga Pórhallasonar til vitnis um það en hún var skrifuð undir lok 18du aldar og er til muna nútímalegri en skáldsögur næstu hundrað árin17. Söguhetja hennar brýtur af sér menningarlegar viðjar og ferðast milli ólíkra tilverusviða — efnisveruleika og hulduheims. Sjálf hennar óhamið, mótsagnakennt og án
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.