Andvari - 01.01.1893, Blaðsíða 74
68
með sólarhrings fyrirvara, en tilgreina skal liann
verkefni fundarins í fundarboðinu.
Stjórn fjelagsins.
40. gr. Stjórn fjelagsmála er fengin í liendur
7 manna stjórnarnefnd, er stýrir öllum málefnum
fjelagsins milli fulltrúafunda, eptir þeim reglum og
innan þeirra takmarka, sem lög fjelagsius og full-
trúafundir setja. — 41. gr. I stjórnarnefndinni eiga
sæti 1 formaður, 1 varaformaður og 5 nefndarmenu.
Nefndin er kosin til 3 ára, þannig: Á fyrsta full-
trúafundi ganga 2 úr nefndinni, á næsta fulltrúafundi
ganga aðrir 2 úr, og á þriðja fulltrúafundi ganga úr
þeir 3 menn, sem þá eru eptir af nefnd þeirri, sem
fyrst var kosin. Á fyrsta og öðrum fulltrúafundi
ræður hlutkesti hverjir fara úr nefndínni. Eptir það
ganga úr nefndinni á hverjum fulltrúafundi, eptir
sömu röð, þeir sem setið hafa 3 ár frá því þeir
voru kosnir. Á hverjum fundi eru kosnir menn í
hin auðu sæti í nefndinni. — Fjelagsmenn að eins
eru kjörgengir í nefndina. Kjósa má þá, er úr hafa
gengið. Stjórnarnefndarmenn greiða ekki atkvæði
við kosningu í stjórnarnefnd. Nefndin sjálf kýs úr
sínum flokki formann og varaformann. Deyi nefnd-
armaður eða missist á annan hátt úr nefndinni
milli funda, getur nefndin sjálf tekið mann í hans
stað til næsta fulltrúafundar. — 42. gr. Stjórnar-
nefndin annast um framkvæmdir allra fjelagsmála.
Hún annast alla reikningsfærslu fjelagsins, um við-
skipti þess utanlands og innan, um stofnsjóð, vara-
sjóð og hvað annað, sem snertir fjárhag fjelagsins.
Hún annast einnig öll önnur ritstörf fjelagsins. Nefnd-
in getur skipt störfum þessum milli formanns og
kaupstjóra, einnig falið öðrum mönnum úr nefndinni
það af störfum þessum, er henni þykir við eiga.