Andvari - 01.01.1893, Blaðsíða 173
167
In í 7. kafia um stjórnlagabreytingar 71. sbr. 16.
grein, er samhljóða 61. grein stjórnarskrár þeirrar,
sem nú er. í 72. grein eru nauðsynleg fyrirmæli
um það, hvenær stjórnarskráin skuli numin úr gildi,
•ef frumvarpið nái staðfestingu, en á þessu verður
■ekki byggð nein viðurkenning alþingis á stjórnlaga-
legu gildi hennar hingað til gagnvart íslendingum,
heldur að eins það, að samþykki Danastjórnar á hin-
um nýju löíyum nemi burtu þá heimild stjórnarinn-
•ar yfir sjerstöknm málum Islands, sem fundin hefur
verið í stjórnarskránni 5. jan. 1874, og fram-
kvæmd liefur verið og búið hefur verið undir til
þessa með fyrirvara frá hálfu alþingis.
Vjer höfum neyðzt til þess að fara harla fljótt
yfir sögu í athugun á innihaldi endurskoðunarfrmn-
varpsins, og að eins getað nefnt hin helztu aðalat-
-riði. — Vjer höfum heldur ekki álitið það heppilegt
á svo naumu rúmi, að liða innihaldið sundur að öllu
leyti á vísindalegan hátt (systematiskt), heldur höf-
>um vjer fylgt sjálfri skipting frumvarpsins í kafla,
er vjer litum á skipan stjórnarinnar inn á við, með
•því vjer ætiuðum, að mönnum gæti orðið ljósara
yfirlitið yfir heildina á þennan hátt. En þessi stutta
■skýring vor á innihaldi frumvarpsins hefur leitt til
þeirrar niðurstöðu,- að það yfir höfuð sje sniðið ept-
ir tilsvarandi ákvæðum dönsku grundvallarlaganna,
■að eins með þeim afbrigðum, sem ýmist sambandið
við eldri rjett (svo sem stjórnarskrána) eða sjerstak-
leikur á afstöðu og högum landsins beinlínis hefur
i för með sjer, að einum undanteknum, algjörlega
sjerstökum meginákvæðum, sem nauðsynleg eru til
skipunar sjerstakri innlendri stjórn í skilningi nýrri
tíma, með þeim eðlilegu afbrigðum á einstöku grein-
<um frumvarpsins, sem þetta aptur leiðir af sjer, þar
sem fyrirmyndinni þó að öðru leyti er fylgt (svo sem