Andvari - 01.01.1893, Blaðsíða 80
74
fjelagsmanna, og svo nokkru af stofnfje þeirra fje-
lagsmanna, sem meira eiga en 500 kr. í stofnsjóði
fjelagsins, og þá í hlutfalli við stofnfjáreign livers
þeirra. — 67. gr. Til að skila aptur stofnfje þarf
ályktun fulltrúafundar. Skal stjórnarnefndin segja
því stofnfje upp með 3 mánaða fyrirvara, sem álykt-
að hefur verið að skila aptur, og að þeim tíma liðn-
um greiðir fjelagið ekki vexti af fjenu, þó þess
sje ekki vitjað, nema sjerstaklega verði um samið.
Afborgun af áhöldum.
68. g-r. Ef fjelagið kaupir áhöld, hús, skip
■eða slíkt, sem ekki verður haft í veltu, skal árlega
telja með kostnaði fjelagsins í minnsta lagi 6°/o af
verði þessara föstu eigna, auk árlegs viðhalds og
ábyrgðargjalds. Þegar hið upprunalega verð þess-
ara eigna er þannig greitt skal telja með verzlun-
arkostnaðinum hœfilegt gjald fyrir firningu eign-
anna á ári hverju, auk árlegra endurbóta og ábyrgð-
argjalds, og leggst þetta gjald í varasjóðinn.
Viðsldpti við Landsbanlcann
69. gr. Fjelagið skal hafa viðskiptareikning
við Landsbankann, og skal stjórnarnefndin láta sjer
annt um að peningaviðskipti milli fjelagsins og fje-
lagsmanna fari þar frarn, að svo miklu leyti, sem við
verður komið, sömuleiðis peningaviðskipti fjelagsins
við menn í öðrum löndum. Þeir vextir sem fást
kunna af veltufje fjelagsins í Landsbankanum eða
annarstaðar teljast með tekjum fjelagsins.
Loforðabrigð og sTcaðabœtur.
70. gr. Sá sem hefur lofað fjenaði til útfiutn-
ingð, ep efnir ekki þau loforð, skal borga fjeiaginu
íyrir 31. des. það ár tiltölulega fullt fiutningsgjald fyr-