Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Síða 3
Fimmtánda ráðstefnan
um rannsóknir í líf- og
heilbrigðisvísindum í Háskóla
Islands
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla íslands og undirbúningsnefnd býður ykkur velkomin
til fimmtándu ráðstefnunnar um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum í Háskóla
Islands. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár og allar deildir, námsbrautir og stofnanir
heilbrigðisvísindasviðs standa að hertni. Ráðstefnan hefur aldrei verið jafn umfangsmikil og nú,
en nálega fjögur hundruð ágrip bárust til kynningar á rannsóknarverkefnum. Til þess að koma
til móts við þátttakendur og gefa sem flestum færi á að kynna rannsóknamiðurstöður sínar sem
erindi verða fjórar málstofur samhliða báða ráðstefnudagana.
Ráðstefnan hefur með árunum orðið vettvangur þeirra sem vilja kynna rannsóknir á sviði líf-
og heilbrigðisvísinda í víðustu merkingu. Hún gefur því gott yfirlit yfir rannsóknastarfsemi í
þessum málaflokki hér á landi. Höfundar efnis eru ekki eingöngu starfandi við Háskóla íslands
heldur einnig við aðra háskóla og rannsóknastofnanir erlendar sem innlendar, frá Landspítala
sem og öðrum heilbrigðisstofnunum og heilsugæslu.
I tilefni af eitt hundrað ára afmæli Háskóla íslands og læknadeildar verður skipulögð opin
málstofa á ráðstefnunni ætluð almenningi. Á þennan fund eru allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir. Þrír fræðimenn við heilbrigðisvísindasvið munu flytja erindi um heilbrigðismál og
rannsóknir sem ætla má að höfði til margra. Erindin heita: Bólusetningar, ávinningur og áhætta,
flutt af dósent Þórólfi Guðnasyni, smitsjúkdómalækni barna; Hjartaskurðlækningar á íslandi,
flutt af prófessor Tómasi Guðbjartssyni, hjartaskurðlækni og loks Þyngdin til rannsóknar, flutt
af prófessor Laufeyju Steingrímsdóttur, næringarfræðingi. Eftir erindin gefst fundargestum
tækifæri til fyrirspurna. Þessari nýbreytni er ætlað að veita almenningi innsýn í hvernig
rannsóknaráðstefna gengur fyrir sig, og er eins og áður sagði, í tilefni af aldarafmæli Háskóla
Islands og læknadeildar og er fyrsti viðburðurinn í röð ráðgerðra uppákoma á afmælisárinu
2011.
Það hvílir fyrst og fremst á þátttakendum sjálfum hversu vel ráðstefnan tekst til. Það er
von skipuleggjenda að hún skapi vettvang fyrir virka þátttöku og lífleg, opin og akademísk
skoðanaskipti og leiði þannig til nýrra tengsla og samskipta sem orðið gætu grunnur að nánara
samstarfi rannsakenda hinna ýmsu fræðasviða heilbrigðisvísindasviðsins.
Velkomin til ráðstefnu!
Sigurður Guðmundsson,
forseti heilbrigðisvísindasviðs
Háskóla íslands
Vilhjálmur Rafnsson,
formaður Vísindanefndar
læknadeildar
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL
www.laeknabladid.is
[jkú
Aðsetur
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
564 4104-564 4106 (fax)
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ábm. og ritstjóri
Anna Gunnarsdóttir
Bryndís Benediktsdóttir
Gunnar Guðmundsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Soffía Dröfn Halldórsdóttir
soffia@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
500
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Prentun, bókband
og pökkun
Oddi,
umhverfisvottuð
prentsmiðja
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
ISSN: 0254-1394
LÆKNAblaðið 2011/97 3