Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Page 36

Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Page 36
XV VISINDARAÐSTEFNA Hl FYLGIRIT 66 E 57 Heilsuefling bæjarstarfsmanna á Höfn Matthildur Ásmundardóttir, Þórarirm Sveinsson Rannsóknarstofu í hreyfívísindum, Lífeðtisfræðistofnun HÍ matthildur77@simnet.is Inngangur: Vinnuveitendur einblína margir á kostnað sem tengist heilsu starfsmanna sinna en rannsóknir hafa sýnt fram á greinileg tengsl milli áhættuþátta sjúkdóma, heilsu og heilsutengdan ko- stnað fyrirtækja. Heilsuefling getur því dregið úr heilsutengdum kostnaði. Rannsóknir hafa sýnt að íhlutanir með áherslu á hrey- fingu eru áhrifaríkar í að auka eða viðhalda hreyfingu. Ihlutanir geta verið á ýmsu formi. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort tvær mismunandi íhlutanir á formi heilsueflingar geti leitt til aukinnar hreyfingar og bættrar heilsu á meðal bæjarstarfsmanna á Hornafirði. Annað íhlutunarformið byggði á einstaklingsmiðuðum viðtölum en hitt formið var hins vegar almennara og hópmiðað. Efniviður og aðferðir: Öllum bæjarstarfsmönnum Homafjarðar í 50% starfshlutfalli eða meira var boðin þátttaka og tóku 125 starfs- menn þátt. Allir þátttakendur voru mældir í upphafi, eftir sex mánaða íhlutunartímabil og aftur sex mánuðum eftir að íhlutun lauk. Mælingarnar voru: holdafarsmælingar (hæð, þyngd, líkamsþyn- gdarstuðull, mittisummál og fituprósenta), þrekmæling (sex mínútna hjólapróf), blóðmælingar (heildarkólesteról, HDL og LDL kólesteról, þríglýseríð, blóðsykur), spurningalisti um heilsutengd lífsgæði, hreyfing með hreyfimæli. Þátttakendum var skipt í þrjá hópa sem fengu mismunandi íhlutun: viðmiðunarhóp og tvo rannsóknarhópa. Niðurstöður: Allir hóparnir lækkuðu marktækt í efri mörkum (p=0,01) og neðri mörkum (p=<0,001) blóðþrýstings. Breytingarnar voru eins í öllum hópunum (víxlhrif voru ekki marktæk). Allir hópamir hreyfðu sig minna (p=0,03) í lok rannsóknartí- mabils, marktæk víxlhrif (p=0,05) komu fram milli hópa. Alyktanir: íhlutunin skilaði ekki tilætluðum árangri. Niðurstöður benda til að íhlutunin hafi ekki verið nægilega mikil til að ná að hafa áhrif á þátttakendur. E 58 Hefur fæðingarmánuður áhrif á heilsu og menntun íslendinga? Þórhildur Ólafsdóttir, Tinna Laufey Ásgeirsdóttir Hagfræðideiid HÍ tho32@hi.is Inngangur: Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort fæðingarmánuður tengist því hvernig íslenskum stúlkubörnum reiðir af síðar á lífsleiðinni. Erlendar rannsóknir hafa fjallað um ýmsa þætti í byrjun lífs sem gætu haft áhrif á velferð einstaklinga síðar á lífsleiðinni og hefur fæðingarmánuður verið kynntur til sögunnar í því samhengi. Ýmsar kenningar hafa komið fram til skýringar þessara tengsla. Niðurstöðumar hafa túlkanlegt gildi fyrir mismunandi skólakerfi, hlutfallslegan aldur nemenda við upphaf skólagöngu og rannsóknaraðferðir þar sem fæðingarmánuður er notaður sem náttúmleg tilraun í rannsóknum á lengd skólagöngu. Áhugavert er að framkvæma slíka rannsókn á íslandi þar sem skólakerfið er ólíkt því sem gerist í samanburðarlöndunum en lengd skólaskyldu miðast við fæðingarmánuð í Bandaríkjunum en hérlendis er miðað við skólaárið. Því má búast við ólíkum niðurstöðum ef þessir þættir hafa áhrif á sambandið sem er til athugunar. Efniviður og aðferðir: Gögn rannsóknarinnar eru úr könnun sem Krabbameinsskrá framkvæmdi árið 2004 og inniheldur handahófskennt úrtak 20.000 íslenskra kvenna á aldrinum 18-45 ára. Aðhvarfsgreining er framkvæmd til þess að meta hvort fæðingarmánuður tengist eigin mati á heilsu og árafjölda í skóla. Niðurstöður: Niðurstöður benda ekki til þess að um samband sé að ræða milli fæðingarmánaðar og þess hvemig einstaklingunum reiðir af síðar á lífsleiðinni ef notuð eru hefðbundin viðmið um tölfræðilega marktækni, þó má greina kerfisbundnar breytingar á punktmati. Ályktanir: I fyrri rannsóknum hefur sambandið milli fæðingarmánaðar og árafjölda í skóla ekki verið sterkt og ef niðurstöður þessarar rannsóknar eru skoðaðar með tilliti til úrtaksstærðar þá eru þær í samræmi við bandarískar niðurstöður sem benda til þess að þeir sem fæðast í byrjun árs hafi færri menntunarár að baki en aðrir. Þessi niðurstaða rennir ekki stoðum undir kenningar um áhrif skólakerfis eða hlutfallslegs aldurs á sambandið sem er til athugunar. Áhugavert væri því að rannsaka breytileika í árafjölda menntunar eftir fæðingarmánuði að teknu tilliti til fjölskyldubakgrunns með töluvert stærra úrtaki. E 59 Líðan og heilsutengd lífsgæði foreldra barna með meðfædda heilalömun I samanburði við foreldra heilbrigðra barna Ásta Harðardóttir', Zuilma Gabríela Sigurðardóttir', Haukur Freyr Gylfason" 'Sálfræðideild HÍ, 'viöskiptadeild HR zuilma@hi.is Inngangur: Á íslandi hefur verið lítið um rannsóknir á líðan og heilsutengdum lífsgæðum foreldra barna sem búa við skerta heilsu sem varir lengur en þrjá mánuði. Heilsutengd lxfsgæði (Health-Related Quality of Life) felast í að vera án verkja, hafa næga orku, getu og aðstæður til að takast á við daglegt líf á þarm hátt sem fólki finnst eðlilegt að geta gert. Ef þau skerðast þá hefur það áhrif á líðan. Efniviður og aðferðir: Spumingalistar voru sendir til foreldra allra bama sem fengu greiningu með meðfædda heilabilxm (Cerebral Palsy, CP) á árunum 1991-2007. Svör bárust frá foreldrum 79 barnanna (N=150). Sambærilegur hópur foreldra heilbrigðra barna (foreldrar 81 bams, N=132) var valinn til samanburðar út frá fjölda þeirra mæðra bama með meðfædda heilabilun sem tóku þátt í rannsókninni að teknu tillti til aldurs, menntunnar og hjúskaparstöðu. Til að mæla heilsutengd lífsgæði voru notaðir tveir spurningalistar; HL-listinn sem er íslenskur og hefur verið staðlaður (T=50, SF=10) meðal landsmanna og EQ-5D sem er alþjóðlegur listi sem gerir alþjóðlegan samanburð mögulegan, en vantar þó erm stöðluð viðmið fyrir ísland. Á báðum þessum listum merkir hærra skor meiri heilsutengd lífsgæði. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins sendi út spumingalista til foreldra bama með meðfædda heilabilun. Samanburðarhópur var valinn með hentugleikaaðferð en sem mest sambærilegur við foreldra barna með meðfædda heilabilun sem tóku þátt í rannsókninni. Niðurstöður: Rannsóknin leiddi í ljós mun á heilsutengdum lífsgæðum foreldra eftir því hvort að bam var með meðfædda heilabilun eða ekki. Þá var munur á heilsutengdum lífsgæðum foreldra barna með meðfædda heilabilun eftir greiningarári bams og að hluta til einnig á líðan. Ályktanir: Niðurstöður styðja að ákveðin tímabil séu foreldrum erfiðari en örmur og álykta má út frá þeim um fyrirbyggjandi aðgerðir. 36 LÆKNAblaðið 2011/97
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.