Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Page 47

Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Page 47
XV VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ FYLGIRiT 66 tæknin var notuð til að sýna fram á seinkun í heilaþroska hjá hópi einstaklinga með ADHD. Það er því líklega hægt að tengja MentisCura aldursstuðulinn við heilaþroska. Alyktanir: Með notkun aldursstuðulsins er hugsanlegt að bera saman heilaþroska hópa með mismunandi heilaraskanir á tiltölulega ódýran °g áreiðanlegan hátt. E 92 Heilablæðingar hjá fyrirburum - tíðni, áhættuþættir og afleiðingar Jóhanna Gunnlaugsdóttir1, Laufey Ýr Sigurðardóttiru, Þórður Þórkeisson1'2 Læknadeild HÍ, 3Barnaspítala Hringsins thordth@landspitali.is Inngangur: Lífslíkur fyrirbura hafa aukist mikið á undanförnum aratugum. Flest barnanna verða heilbrigðir einstaklingar, en fötlun er þó slgengari meðal þeirra en fullburða barna. Ein helsta ástæða fötlunar hjá fyrirburum er heilablæðing. Markmið rannsóknarinnar er að kanna tíðni heilablæðinga hjá minnstu fyrirburunum hér á landi, helstu áhættuþætti °g afleiðingar þeirra. Efniviður og aðferðir: Gerð var afturskyggn tilfella-viðmiðarannsókn a fyrirburum sem fæddir voru eftir 24-30 vikna meðgöngu hér á landi árinl988-2007. Tilfellin voru þau börn sem fengu heilablæðingu en viðmiðin jafn mörg börn sem ekki fengu heilablæðingu, pöruð á meðgöngulengd og fæðingarári. Niðurstöður: Níutíu og þrír fyrirburar greindust með heilablæðingu, þar af 56 með væga (gráða I eða II) og 37 með alvarlega heilablæðingu, (gráða III eða IV). Tíðni heilablæðinga var í öfugu hlutfalli við meðgöngulengd. Áhættuþættir fyrir alvarlegri heilablæðingu voru glærhimnusjúkdómur (p=0,004) og Apgarstig við 5 mín. <6 (p=0,01), en steragjöf fyrir fæðingu vemdandi (p=0,03). Af þeim sem fengu alvarlega heilablæðingu létust 64,9%. Af þeim sem lifðu fengu 61,5% heilalömun (cerebral palsy) síðar á ævinni, en 6,1% viðmiðanna (p<0,0001). ^lyktanir: Tíðni heilablæðingar eykst eftir því sem meðgöngulengdin er styttri. Áföll í fæðingunni og mikil veikindi á nýburaskeiði auka líkur a alvarlegri heilablæðingu hjá fyrirburum. Dánartíðni og tíðni fatlana er há meðal fyrirbura sem fá alvarlega heilablæðingu. Líklegt er að með frekari framförum í fæðingarhjálp og umönnun fyrirbura sé hægt að mmnka tíðni alvarlegra heilablæðinga hjá þeim. E 93 Bólusetningar barna á íslandi, afstaða foreldra Emma Dögg Ágústsdóttir1, Ragnheiður Elísdóttir’, Sveinn Kjartansson2-5, Þórólfur uðnason4, Haraldur Briem4, Asgeir Haraldsson1-2-5 .j'^'Ln.idcild HÍ, 2Bamaspítala Hringsins, ’Miðstöð heilsuverndar barna, ’landlæknisembættinu, as9eir@iandspitali.is ^nngangur: Bólusetningar eru ein arðbærasta og mikilvægasta I’eilbrigðisaðgerð sem til er. Árangurinn er minnkandi nýgengi srnitsjúkdóma sem bólusett er gegn. Reglulega koma upp umræður Um öryggi bólusetninga og aukaverkanir, slík umræða kann að hafa neikvæð áhrif á afstöðu foreldra til bólusetninga. Rannsóknin er gerð til að meta afstöðu foreldra á íslandi til bólusetninga barna. Efniviður og aðferðir: Spurningalisti sem var lagður fyrir foreldra nýfæddra barna á helstu fæðingarstöðum landsins. Spurningarnar voru samdar með það að markmiði að meta afsöðu foreldra til bólusetninga °8 til heilbrigðiskerfisins. Listinn var lagður fyrir föður og móður hvort 1 sínu lagi. Niðurstöður: Alls tóku 845 einstaklingar þátt í rannsókninni, 45% voru karlar og 55% konur. Nær allir þátttakendur (99%) telja bólusetningar veita vörn gegn sýkingum og 97% foreldra ætla að láta bólusetja barn sitt samkvæmt íslensku fyrirkomulagi. Foreldrar eru mjög jákvæðir gagnvart bólusetningum á fyrsta og öðru aldursári. Meirihluti foreldra (63%) óttast ekki alvarlegar aukaverkanir bólusetninga. Aðeins 38% foreldra telur bólusetningar ákjósanlegri en náttúrulegar sýkingar, 62% eru óvissir eða telja náttúrulegar sýkingar gera barnið hraustara en bólusetningar. Menntun, kyn og fjöldi barna eru þeir þættir sem helst hafa marktæk áhrif á afstöðu foreldra til bólusetninga barna. Ályktanir: Niðurstöður rannsóknarinnar staðfesta að íslenskir foreldrar treysta gagnsemi bólusetninga og ótti við alvarlegar aukaverkanir er afar lítill. Þetta gefur von um að áfram megi halda aivarlegum smitsjúkdómum frá íslenskum börnum. Ávinningur af bólusetningum er ríkulegur og fjölþættur bæði fyrir einstaklinga og samfélagið í heild sinni. E 94 Sýkingar og sjálfsónæmissjúkdómar eru algengir hjá einstaklingum sem hafa fengið slæma einkirningasótt Davíð Þór Þorsteinsson1-2, Björn Rúnar Lúðvíksson1-3, Helga Bjarnadóttir1'3, Arthúr Löwe1-4, Ásgeir Haraldsson1-2 ’Læknadeild HÍ, 2Barnaspítala Hringsins, ’rannsóknastofu í ónæmisfræði og ’rannsóknastofau í veirufræðu Landspítala asgeir@landspitali. is Inngangur: Yfir 90% mannkyns er sýktur af Epstein Barr veiru (EBV) en fáir fá klínísk einkenni, nefnd einkimingasótt. Tengsl hafa fundist milli EBV sýkingar og ákveðinna illkynja sjúkdóma. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort mikil klínísk einkenni við frumsýkingar EBV hefðu fylgni við aðra sjúkdóma, svo sem sýkingar og sjálfsónæmissjúkdóma. Efniviður og aðferðir: í skrám Landspítala fundust sjúklingar sem voru lagðir inn með einkirningasótt. Safnað var gögnum um aldur, kyn, dagsetningu greiningar og aðrar greiningar. Eitt hundrað og fimmtán manns með lengstan tíma eftirfylgdar var boðið í viðtal og svöruðu spurningum um heilsufar með áherslu á sýkingar og sjálfsónæmissjúkdóma. Niðurstöður: Sex hundruð og tveir einstaklingar voru lagðir inn með einkirningasótt frá 1981 til 2005; 310 karlar (52%) og 289 konur (48%). Miðgildi aldurs við greiningu var 15 ár (17 dagar-86 ár). Miðgildi tíma frá greiningu var 15,1 ár (4,3-29 ár). Eitt hundrað og fimmtíu manns (25%) höfðu 210 aðrar greiningar. Af 115 manns með lengstan tíma eftirfylgdar tóku 83 þátt í rannsókninni (72%). Miðgildi eftirfylgdar var 20 ár (13-28 ár) og miðgildi aldurs við innlögn 14,6 ár (17 daga-36 ára). Af hópnum höfðu 30 fengið lungnabólgu einu til fimm sinnum (36%) og oftar en fimm sinnum (2%), 58 höfðu fengið hálsbólgu oftar en 10 sinnum (70%), 43 fóru í hálskirtlatöku (52%) og 28 í nefkirtlatöku (33%). Fjórtán (17%) fengu sýkingar oftar en jafnaldrar í æsku og 33 (40%) fengu sýklalyf á síðasta ári. Tuttugu og sjö einstaklingar (32%) voru greindir með ofnæmiskvef, exem eða ofnæmisbólgur í augum og nefi og 33 (40%) með ofnæmi. Þrjátíu og einn (37%) hafði verið greindur með sjálfsónæmissjúkdóm. Ályktanir: Faraldsfræði einkirningasóttar á íslandi er svipuð og á Vesturlöndum. Sýkingar, ofnæmistilhneiging og sjálfsónæmissjúkdómar eru algengir hjá einstaklingum sem hafa fengið slæma einkirningasótt. LÆKNAblaðið 2011/97 47
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.