Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Qupperneq 77
XV VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ
FYLGIRIT 66
hefur aðallega verið þróuð og notuð til að tjá endurröðuð prótein.
Einnig er verið að þróa baculoveirur sem genaferjur og þær þá hannaðar
með viðeigandi tjáningarkasettu. Markmið verkefnisins er að hanna
baculoveirugenaferju til bólusetninga.
Efniviður og aðferðir: Notað verður Bac-to-bac baculoveirukerfið
(Invitrogen). Til genainnsetninga í baculoveiruna er notað pFastBac
plasmíð. Glýkóprótein B (gB) úr equine gammaherpesveiru 2
(EHV2-Bj) er sett inn á pFastBac undir stjórn polyhederin stýrils sem
aðeins virkar í skordýrafrumum. gB-genið er tjáð í veirukápunni og
gerir innleiðslu í hestafrumur mögulega. Baculoveiran getur ekki
fjölgað sér í hestafrumum. Til að fá tjáningu á ofnæmisvakagenum
er tjáningarkasettu komið fyrir í erfðaefni veirunnar sem hefur
cýtómegalóveiru stýril, intron A, ofnæmisvakagen og poly A hala.
Niðurstöður: gB úr EHV2-Bj hefur verið magnað upp og sett inn á
pFastBac. Unnið er að gerð tjáningarkasettu með Ag5 ofnæmisvakageni.
Kasettan er gerð í gWiz vektor, klippt út og komið fyrir í pFastBac sem
inniheldur gB genið.
Alyktanir: Baculoveiruferja til fyrirbyggingar eða meðhöndlunar á
ofnæmi er einstök í sinni röð og ný nálgun í ofnæmisrannsóknum og
ofnæmismeðhöndlun. Niðurstöður munu ekki eingöngu nýtast fyrir
sumarexemi í hrossum heldur einnig í öðrum ofnæmissjúkdómum í
dýrum og jafnvel í mönnum.
Þakkir: Framleiðnisjóður landbúnaðarins, RHÍ og þróunarfjárframlag
til hrossaræktar
E 188 Þróun herpesveiruferju til bólusetninga gegn sumarexemi í
hestum
Lilja Þorsteinsdóttir', Sigurbjörg Þorsteinsdóttir1, Einar G. Torfason2, Vilhjálmur
Svansson1
'Tilraunnstöö HÍ í meinafræði að Keldum, :rannsöknastofu Landspítalans í veirufræði
liljatho@hi.is
Inngangur: Sumarexem er húðofnæmi af gerð I í hestum sem orsakast
af biti smámýs sem lifir ekki á íslandi. Tíðni sjúkdómsins er mjög há í
útfluttum hestum. Síðan 2000 hefur á Keldum verið unnið, í samstarfi við
erlenda aðila, að rannsóknum á sumarexemi með endanlegt markmið að
þróa ónæmismeðferð. Hestar eru sýktir af equine gammaherpesveiru 2
(EHV-2) frá unga aldri og veldur veiran litlum sem engum sjúkdómi.
Sýkingin þróast yfir í dulsýkingu sem endist ævilangt, en endursýkingar
með öðrum afbrigðum eru algengar. Markmið verkefnisins er að hanna
herpesveirugenaferju til bólusetninga.
Efniviður og aðferðir: Við hönnun veiruferja verður notuð eyðuhreinsuð
íslensk veira, EHV2-Bj, sem ræktaðist úr heilbrigðum hesti. Fullgerðar
veiruferjur verða innleiddar með lipofectamine™2000 (Invitrogen) í
EHV2-Bj sýktar hestafósturnýrnafrumur. Green fluorescent protein
(GFP) verður notað sem prófgen á innsetningu. Skimað verður fyrir
endurröðuðum veirum með PCR, ónæmisþrykki eða flúrsmásjá.
Niðurstöður: Verið er að hanna fjórar ólíkar EHV ferjur þar sem
genum er komið fyrir á ólíkum stöðum í erfðaefni EHV2-Bj, ýmist í
tjáningarkasettu eða beint fyrir aftan gen og er þá tjáð samhliða því.
hrjár ferjur sem tjá EGFP og tvær sem tjá ofnæmisvakagenið Ag5 eru
tilbúnar. Unnið er að eyðuhreinsun á ferjum með GFP.
Alyktanir: Tekist hefur að hanna veiruferjur fyrir hesta byggðar á EHV-
2. Ferjurnar munu nýtast í genabóluefni fyrir hesta og með sýnigeni
verður hægt að nota þær í rannsóknir á sýkingar- og sjúkdómsferli
gammaherpesveira í hestum. Veirugenaferjur til bólusetninga gegn
ofnæmi eru ný nálgun í ofnæmisrannsóknum og ofnæmismeðhöndlun.
Þakkir: Framleiðnisjóður landbúnaðarins, RHÍ og þróunarfjárframlag
til hrossaræktar.
E 189 Forspárþættir og horfur hjá arfberum BRCA2 stökkbreytingar
með brjóstakrabbamein - hraður framgangur tvílitna æxla
Laufey Tryggvadóttir1-2, Elínborg J. Ólafsdóttir1, Guðríður H. Ólafsdóttir1, Helgi
Sigurðsson23, Bjarni A. Agnarsson2-4, Jórunn E. Eyfjörð5, Jón G. Jónasson1'24
'Krabbameinsskrá KÍ, :læknadeild HÍ, 3krabbameinslækningadeild, 4rannsóknastofu í
meinafræði Landspítala, 5rannsóknastofu í krabbameinsfræðum HÍ
laufeyt@krabb.is
Inngangur: Konur með stökkbreytt BRCA2 gen hafa aukna
brjóstakrabbameinsáhættu. Fyrri rannsóknir benda til að stökkbreytingar
hafi lítið samband við horfur.
Efniviðurogaðferðirflrannsóknarhópvorukonurmeðbrjóstakrabbamein
(greindar 1928-2008) sem tekið höfðu þátt í rannsóknum rannsóknastofu
í sameinda- og frumulíffræði og Krabbameinsskrár KÍ þar sem leitað
var að íslensku BRCA2 landnemastökkbreytingunni; 222 arfberar og
2.357 án stökkbreytingarinnna (þar af undirhópur 444 kvenna, paraðar
á fæðingarár og greiningarár). Tenging við lýðgrundaðar heilsufarsskrár
gaf upplýsingar um krabbamein og forspárþætti. Hættuhlutfall (Hazard
ratio, HR) fyrir brjóstakrabbameinssértæka lifun var metið með
lifunargreiningu Cox.
Niðurstöður: Arfberar höfðu aukið áhættuhlutfall (HR, 1,38; 95%
CI 1,04-1,83) eftir ieiðréttingu fyrir stærð æxlis og eitlaíferð. Konur
með og án stökkbreytingar höfðu svipað hlutfall æxla með jákvæða
estrógen viðtaka og hlutfall tvíiitna æxla (DNA index 1,00±1,15), en
hins vegar voru arfberar átta árum yngri við greiningu (P<0,001), hærra
hlutfall fékk nýja bq'óstakrabbameinsgreiningu (18,5% miðað við 8,1%,
P<0,001), æxlin voru stærri (meðalstærð 27,6 mm miðað við 23,0 mm,
P=0,01), oftar eitlaíferð (51,3% miðað við 42,2%, P=0,06) og æxlisgráða
hærri (52,0% með hæstu gráðu miðað við 30,9%, P<0,001). Munur á
forspárþáttum var bundinn við sjúklinga með tvílitna æxli, og þar var
hann mun skarpari. í þeim hópi var einnig meira afgerandi munur á
horfum arfbera og óstökkbreyttra (HR=3,64; 95% CI 2,16-6,13). Arfberar
með tvílitna æxli höfðu mun hærra áhættuhlutfall en arfberar með
mislitna æxli (HR=3,77; 95% CI 1,54-9,23).
Alyktanir: íslenskar konur með BRCA2 stökbreytingu höfðu nærri
fjórfalt verri horfur en konur án breytingarinnar ef æxlin voru tvílitna.
Hjá arfberum voru tvílitna æxli mun framgangsharðari en mislitna æxli.
Niðurstöðurnar hafa meðal annars klínískt gildi.
E 190 Áhrif slökunarmeðferðar á einkenni sjúklinga með krabbamein
Þóra Jenný Gunnarsdóttir1, Nanna Friðriksdóttir2, Lilja Jónasdóttir2
■Hjúkrunarfræðideild HÍ, 2Landspítala
thoraj@hi.is
Inngangur: Gagnreyndar viðbótarmeðferðir eins og nudd og slökun
hafa samkvæmt erlendum rannsóknum reynst árangursríkar til þess
að draga úr einkennum og bæta líðan sjúklinga með krabbamein.
Slökunarmeðferð hefur verið í boði á dag- og göngudeild blóð- og
krabbameinslækninga á Landspítala í rúman áratug. Sjúklingar hafa
tjáð ánægju sína með meðferðina en árangur hennar hefur ekki verið
markvisst metinn.
Efniviður og aðferðir: Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna
LÆKNAblaðið 2011/97 77