Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Page 96

Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Page 96
XV VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ FYLGIRIT 66 Ályktanir: Niðurstöður aðferðanna tveggja eru sambærilegar og því má álykta að sýrustig drykkja gefur vísbendingu um glerungseyðningarmátt. Sýrustigsmæling (pH) drykkja ein og sér er því einföld og fljótleg aðferð til að fá upplýsingar um glerungseyðingarmátt hans. I ljósi niðurstaðna væri ástæða til að þróa mælikvarða sem upplýsir almenning um glerungseyðandi áhrif drykkja á einfaldan en vísindalegan hátt. Þetta væri mögulegt í formi stigatöflu sem flokka myndi glerungseyðandi áhrif drykkja í þrjú stig þar sem fyrsta stigs drykkir hefðu minnstu áhrif og það þriðja mestu áhrifin. Þessar upplýsingar eru mikilvægar heilsu neytanda likt og innihaldslýsingar og næringargildi og ættu því að vera aðgengilegar á umbúðum drykkjarvara. V 42 Hafa langveik börn og þau sem taka lyf að staðaldri verri tannheilsu en jafnaldrarnir? Helga Helgadóttir, Hrafnhildur Eik Skúladóttir, Jenný Magnúsdóttir, Sunna Ingimundardóttir, Sigurður Rúnar Sæmundsson, Inga B. Ámadóttir Tannlæknadeild HÍ hes3@hi.is Inngangur: Talið er að sjúkdómar og lyfjanotkun tengist auknu algengi á tannskemmdum og vitað er að mörg lyf valda munnþurrki. í landsrannsókn á tannheilsu barna (MUNNÍS) 2005 var upplýsingum safnað um tannheilsu, sjúkdóma og lyfjanotkun. Skoðuð eru áhrif sjúkdóma og lyfjanotkunar á tannheilsu barna. Efniviður og aðferðir: Úrtakið samanstóð af 20% bama á aldrinum sex, 12 og 15 ára á íslandi (2005), samtals 2251 barni. Tannskoðun fór fram í grunnskólum og var gerð af einum skoðara, þar sem 15 ára svöruðu sjálf spurningalista en sex og 12 ára svöruðu með aðstoð foreldra sinna. Tannáta var metin eftir ICDAS (dmft 1-6 og DMFT 1-6). Einnig var hver fullorðinstönn greind með eða án glerungseyðingar (modified scale of Lussi). Niðurstöður: Svarhlutfall var 81%. Af þeim sem svöruðu eru 19,8% með ofnæmi og mældust þeir með marktækt fleiri skemmdar tennur (DMFT, d 1-6) en jafnaldrar þeirra. Munurinn reyndist vera 40% hærri hjá börnum með ofnæmi. Einnig fannst marktækur munur á tannskemmdatíðni (DMFT, d 1-6) hjá þeim sem eru með langvinnan sjúkdóm en þar mældist liún 34% hærri hjá langveikum börnum en hjá heilbrigðum jafnöldrum þeirra. Af vörnunum taka 9,1% inn lyf daglega og er tannskemmdatíðni (DMFT, d 1-6) þeirra 46% hærri en hjá þeim sem taka ekki lyf að staðaldri. Á milli barna með langvinna sjúkdóma og heilbrigðra barna fundust engin tengsl á glerungseyðingu og það sama átti við um börn sem taka lyf að staðaldri og þeirra sem ekki taka lyf. Ályktanir: Langveik börn og þau sem taka lyf að staðaldri eru með fleiri tannskemmdir en jafnaldrar þeirra og þurfa auknar tannheilsuforvamir. Einnig þarf að upplýsa foreldra, forráðamenn og heilbrigðisstarfsfólk um aukna hættu á tannskemmdum hjá þessum bömum. V 43 Þróun aðferðar til að mæla viðloðun tannlíms við tanngóm Tinna Davíðsdóttir1, Þórdís Kristmundsdóttir1, W. Peter Holbrook2, Skúli Skúlason3, Árni Þ. Kristjánsson3, Aron Guðnason2 Tyfjafræðideild,3 tannlæknadeild HÍ, T.if-HIaupi ehf. thordisk@hi.is Inngangur: Rannsóknir á virkni náttúrulega fituefnisins mónókapríns gegn sveppum benda til að mónókaprín sé vænlegur kostur til að hindra vöxt Candida undir gervitönnum. Með því að blanda mónókapríni við tannlím mætti fyrirbyggja sveppasýkingar í munnholi. Mikilvægt er að mónókaprínið valdi ekki breytingum á viðloðunar-og samloðunareiginleikum tannlíms. Með Texture Analyser TA-XT2 er unnt að mæla nákvæmlega krafta sem þarf til að skilja að tvö yfirborð. Markmið verkefnisins var þróun aðferðar til að nota Texture Analyser TA-XT2 til að mæla áhrif mónókapríns á viðloðunareiginleika tannlíms. Efniviður og aðferðir: Mónókapríni var blandað saman við COREGA (GSK) tannlím í 3-4% þéttni. Notaðar voru tvær aðferðir við þróun mæliaðferðarinnar, annars vegar voru notaðar gervitennur, bæði fyrir efri og neðri góm, sem viðloðunarfletir og hins vegar var notuð plata úr pólýmetýlmetakrýlati. Kraftur sem þurfti til að slíta tannlímið frá yfirborðinu var mældur, bæði hámarkskraftur og flatarmál undir kraft/ tíma kúrfu. Niðurstöður: Við notkun á gervigóm til að meta viðloðun reyndist ekki unnt að fá endurtakanlegar niðurstöður. Erfitt reyndist að stilla nema tækisins og góminn nákvæmlega á sama hátt fyrir hverja mælingu. Niðurstöður fengnar með pólýmetýlmetakrýlatplötu sem viðloðunarflöt sýndu að 3% mónókaprín hafði lítil áhrif á viðloðun en meiri áhrif á samloðun tannlímsins. Með auknum styrk mónókapríns minnkaði bæði viðloðun og samloðun tannlímsins. Ályktanir: Með notkun Texture Analyser og pólýmetýlmetakrýlatplötu er unnt að kanna áhrif íblöndunarefna á eiginleika tannlíms. Mælingarnar gefa ekki raunveruleg gildi á viðloðun eða samloðun heldur vísbendingu um hvaða áhrif íblöndunarefni hafa á eiginleika tannlíms. V 44 Kandídatspróf frá tannlæknadeild að viðbættu rannsóknarverkefni W. Peter Holbrook, Inga B. Ámadóttir Tannlæknadeild HÍ iarnad@hi.is Inngangur: Kandídatspróf í tannlækningum við Háskóla íslands er metið sem meistaragráða án rannsóknarverkefna samkvæmt Bologna- áætlun. Kandídatspróf veitir rétt til að stunda tannlækningar við útskrift og er vel þekkt innan tannlæknisfræðinnar í EES löndum. Tannlæknanemar hafa sýnt áhuga á því að taka rannsóknarverkefni sem valfag við kandídatsprófið til að auka möguleika til að komast í sérfæðinám erlendis. Efniviður og aðferðir: Skráð voru viðbótarrannsókarverkefni nemenda sem lokið höfðu prófi frá tannlæknadeild HÍ. Notuð var tölvuskráning háskólans til finna fjölda nema sem skráð sig höfðu í viðbótar rannsóknaverkefni ásamt því að vera í grurmnámi í tannlæknadeild. Niðurstöður voru skoðaðar með tilliti til birtra greina og ágripa frá klínískum og vísindalegum fundum ásamt því hvort nemar hefðu fengið klíníska sérhæfingu eða frekari gráðu. Einnig var skoðað hvað margir hefðu haft hlutastarf sem klínískir kennarar við deildina. Niðurstöður: Frá 1990 til 1998 hafa níu nemendur tekið viðbótarrannsókarverkefni með birtingu á 10 ágripum og fimm greinum þar af einni grein birtri erlendis. Frá því formleg skráning hófst á viðbótarverkefnum hefur þátttaka aukist. Þarrnig luku 33 af 51 kandídat í tannlækningum (65%) frá 2003 viðbótarrannsókarverkefni. Ályktanir: Það er vaxandi áhugi meðal nemenda að ljúka viðbótarrannsóknarverkefni. Vegna fyrirhugaðar breytingar á að aðlaga nám í tannlæknadeild Bologna-áætlun (3+2) er nauðsynlegt að endurskoða og taka tillit til klínískrar þjálfunar, að viðbættu rannsókanrverkefni. 96 LÆKNAblaðið 2011/97
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.