Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Page 119

Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Page 119
XV VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ FYLGIRIT 66 voru marktækt algengari £ hópum 2, 3 og 4. Þar af voru langvinnur hósti, ýl, mæði við áreynslu og ofnæmi £ nefi algengust £ hópi 4. Saga um lungnaþembu, langvinna berkjubólgu eða astma var algengust í hópi 4. Einkenni kæfisvefns voru marktækt algengari f hópum 2, 3 og 4. Þar af voru dagsyfja og tfðar vaknanir algengastar í hópi 4, en öndunarhlé í svefni algengust f hópi 3. Blásturspróf sýndu að öndunargeta var marktækt lökust í hópi 4. Alyktanir: Saga um vélindabakflæði í svefni tengist sterklega einkennum frá öndunarfærum. Blásturspróf sýndu marktæka skerðingu á öndunargetu meðal þeirra sem höfðu einkenni vélindabakflæðis, en höfðu ekki fengið meðferð. V 114 Algengi svefnleysis meðal kæfisvefnssjúklinga samanborið við almennt þýði. Áhrif meðferðar með svefnöndunarvél á svefnleysi Erla Björnsdóttir', Christer Janson3, Sigurður Júlíusson2, Bryndís Benediktsdóttir'-2, Allan I. Pack1, Philip German4, Þórarinn Gíslasonu 'Læknadeild HÍ, 2lungnadeild Landspítala, 3háskólanum í Uppsölum, 4háskólanum í Pennsylvaníu Bandaríkjunum erlabjo@gmail.com Inngangur: Kæfisvefn og svefnleysi eru algeng vandamál sem fylgjast gjarnan að. Samband þeirra er flókið og óljóst en líklegt er að þessir sjúkdómar hafi neikvæð áhrif hvor á annan. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna tíðni svefnleysis hjá kæfisvefnssjúklingum í samanburði við hóp úr almennu þýði auk þess að meta áhrif meðferðar með svefnöndunartæki á einkenni svefnleysis hjá kæfisvefnssjúklingum. Efniviður og aðferðir: Sex hundruð og tuttugu kæfisvefnssjúklingar og 748 einstaklingar úr almennu þýði gengust undir læknisskoðun og blóðprpfu ásamt því að svara stöðluðum spumingalista um heilsu og svefnvenjur. Kæfisvefnssjúklingar hófu síðan meðferð með svefnöndunartæki og var fylgt eftir með samskonar mati tveimur ámm síðar. Þessi samantekt byggir á 257 kæfisvefnssjúklingum sem lokið hafa eftirfylgni. Svefnleysi var metið með spurningum frá The Basic Nordic Sleep Questionnaire. Skoðaðir voru annars vegar erfiðleikar við að sofna og hins vegar erfiðleikar við að viðhalda nætursvefni. Niðurstöður: Alls áttu 35% kæfisvefnssjúklinga erfitt með að viðhalda nætursvefni (vöknuðu oft) samanborið við 17% viðmiðunarhóps. Þessir svefnörðugleikar eru algengari eftir því sem einkenni kæfisvefns em alvarlegri. Við eftirfylgd kom í ljós að hjá þeim hópi sem notaði svefnöndunarvél að staðaldri dró mjög úr algengi þess að vakna oft að nóttu. Erfiðleikar við að sofna voru ekki algengari hjá kæfisvefnssjúklingum samanborið við viðmiðunarhóp. Ályktanir: Ómeðhöndlaður kæfisvefn dregur úr svefngæðum og sjúklingar fá ekki eins góða hvíld og heilbrigðir einstaklingar. Meðferð með svefnöndunartæki er gagnleg til þess að draga úr svefnleysi sem einkennist af þvf að vakna oft. Því er mikilvægt að einstaklingar með alvarlegan kæfisvefn og svefnleysi noti svefnöndunartæki og bæti þannig svefngæði sín. V 115 Mæði og líkamsrækt eftir sex vikna alhliða endurhæfingu hjá sjúklingum með langvinna lungnateppu Elfa Dröfn Ingólfsdóttir''2, Guðbjörg Pétursdóttir', Marta Guðjónsdóttir'3 'Reykjalundi, endurhæfingarmiðstöð SÍBS, 2læknadeild HÍ, 3lífeðlisfræðistofnun HÍ elfa.ingolfs@gmail.com Inngangur: Óeðlilega mikil mæði er algengt einkenni hjá sjúklingum með langvinna lungnateppu en þekkt er að lungnaendurhæfing dregur úr mæði. Talið er að líkamsþjálfun í kjölfar endurhæfingar sé nauðsynleg til að viðhalda þeim árangri sem næst. Efniviður og aðferðir: Markmið rannsóknarinnar var að meta áhrif sex vikna alhliða lungnaendurhæfingar á þátttöku í reglubundinni líkamsrækt. Einnig hvort þeir sem stunduðu líkamsrækt í eitt ár eftir að endurhæfingunni lauk upplifðu minni mæði en þeir sem ekki stunduðu líkamsrækt. Sjúklingar með langvinna lungnateppu, sem voru á biðlista eftir endurhæfingu á Reykjalundi, svöruðu fyrir innskrift (Tl), við innskrift (T2), við útskrift (T3) og einu ári eftir útskrift (T4), Shortness of breath Questionnaire (SOBQ) spurningalista sem metur upplifun á mæði. Spurt var um þátttöku í líkamsrækt á tímapunktum T2 og T4. Á T4 var hópnum skipt í tvennt eftir því hvort stunduð var reglubundin líkamsrækt eða ekki. Niðurstöður: Enginn munur var á milli hópanna í aldri (67,3±8,8), FEVj (62,6±25,1%), líkamsþyngdarstuðli (29,1±6,2 kg/m2), kynjahlutfalli (konur 63%) eða mæði (54,8±20,4). Fyrir endurhæfinguna stunduðu 38% (52/138) þátttakenda reglubundna líkamsrækt, en 64% (65/102) gerðu það einu ári síðar. Eingöngu sást munur (p<0,05) á upplifun á mæði milli hópanna einu ári eftir að endurhæfingunni lauk. Ályktanir: Lungnaendurhæfing á Reykjalundi fjölgar þeim sjúklingum sem eru virkir í reglubundinni líkamsrækt, einu ári síðar. Þeir sjúklingar sem stunda líkamsrækt upplifa minni mæði að ári liðnu, en þeir sem ekki stunda líkamsrækt. V 116 Þættir sem ákvarða langtímalifun sjúklinga með langvinna lungnateppu sem lagst hafa inn á sjúkrahús Gunnar Guðmundsson1-3, Stella Hrafnkelsdóttir', Christer Janson2, Þórarinn Gíslasonu 'Lungnadeild Landspítala, 2Dept. of Medical Sciences Respiratory Medicine and Allergology, háskólasjúkrahúsinu í Uppsölum, 3læknadeild HÍ ggudmund@landspitali. is Inngangur: Margar rannsóknir eru til á skammtíma dánartíðni sjúklinga með langvinna lungnateppu sem lýsa hárri dánartíðni. Fjöldamörgum áhættuþáttum hefur verið lýst. Takmarkaðar upplýsingar eru til um langtímadánartíðni og tengda áhættuþætti í þessum sjúkdómi. Tilgangur rannsóknarinnar var að greina langtíma dánartíðni og tengda áhættuþætti í sjúklingum með langvinna lungnateppu sem innlagðir höfðu verið á sjúkrahús vegna bráðrar versnunar. Megináhersla var á líkamsþyngdarstuðul, heilsutengd lffsgæði, lyf og aðra samhliða sjúkdómskvilla. Efniviður og aðferðir: Um er að ræða framsæja rannsókn á 256 sjúklingum með langvinna lungnateppu í Reykjavík, Kaupmannahöfn og Uppsölum. Þeim var fylgt eftir í 8,7±0,4 ár eftir sjúkrahúsinnlögn vegna versnunar á langvinnri lungnateppu á árunum 2000 og 2001. í sjúkrahúsinnlögninni var St. George öndunarfæraspurningalistinn lagður fyrir sjúklingana. Aflað var upplýsinga um aðra samhliða sjúkdómskvilla og lyfjameðferð. Niðurstöður Á tímabilinu sem sjúklingunum var fylgt eftir höfðu 202 sjúklingar (79%) dáið og 54 (21%) voru á lífi. Aðaldánarorsök var vegna sjúkdóma í öndunarfærum (n=116), hjarta- og æðakerfi (n=43), vegna krabbameins (n=28) og annars (n=10), upplýsingar fengust ekki um fimm sjúklinga. Dánartíðni tengdist vaxandi aldri, lakari lungnastarfsemi, lægri líkamsþyngdarstuðli og sykursýki. Hærri aldur, lægri líkamsþyngdarstuðull og sykursýki tengdust bæði öndunarfæra- og hjarta- og æðasjúkdómum. Dánarorsök vegna öndunarfærasjúkdóma tengdust lakari öndunarfærastarfsemi. Engin LÆKNAblaðið 2011/97 119
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.