Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Qupperneq 130
XV VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ
FYLGIRIT 66
sykrur sem geta aukið leysni fitusækinna sameinda með fléttun, voru
valin til að koma fituefnunum í lausn til frostþurrkunar.
Efniviður og aðferðir: Þorskalýsi og ómega-3 forte fiskiolíu var blandað
saman við sex mismunandi sýklódextrín eða sýklódextrínafleiður í
vatni. Dreifur voru hristar í fjóra til fimm daga undir köfnunarefni
(N2) og frostþurrkaðar. Þurrdufti var blandað saman við Avicel®,
magnesíum sterat og silíkon oxíð og töflur slegnar í töflusláttarvél undir
lágum þrýstingi. Töflur prófaðar samkvæmt European Pharmacopeia.
Geymsluþol þurrdufts sem samanstóð af þorskalýsi og y-CD var fylgt
eftir í 21 mánuð við (a) 25°C, 60% raki án N2, (b) 25°C, 60% raki undir N2,
(c) 40°C, 75% raki undir N2. Peroxíðpróf og fitusýrugreining í gasgreini
framkvæmd.
Niðurstöður: Aðeins a-CD og y-CD mynduðu fléttur með þorskalýsi
og omega-3 fitusýruesterum. Þurrduft var framleitt sem innihélt 50%
fituefni. Oxunartala þurrdufts með þorskalýsi og y-CD undir N2 var
undir viðmiðunarmörkum Lýsis hf. fyrir markaðshæfar vörur. Töflur
sem slegnar voru úr þurrduftinu stóðust hörkupróf, slitþolspróf og
sundrunarpróf.
Alyktanir: Fljótandi þorskalýsi og omega-3 fitusýruesterum var hægt
að koma á þurrduftsform með notkun sýklódextrína. Það reyndist
mögulegt að slá töflur sem innihéldu 20% af þorskalýsi eða Omega-3
fitusýruesterum. Líklega þarf að húða töflumar til að vemda gegn oxun
og vatnsrofi eða geyma við loftfirrðar aðstæður.
* Þormóður Geirsson lést í október 2009.
V 149 Hámörkun LC-MS/MS aðferðar við magngreiningu á
lífmerkinu Leukotriene B4
Baldur Bragi Sigurðsson1, Gísli Bragason', Ólafur Þór Magnússon3, Margrét
Thorsteinsdóttir1'2
1 ArcticMass ehf., 2lyfjafræðideild HÍ, Islensk erfðagreining
baldur@arcticmass.is
Inngangur: Raðatilbrigði FLAP og LTA4 gena hafa sýnt tengingu við
aukna framleiðslu á leukotriene B4 (LTB4) og aukna hættu á hjartadrepi
og heilablóðfalli. LTB4 er því ákjósanlegt lífmerki í lyfjaþróunarferli
fyrir hjartadrep og heilablóðfall. Tilgangur þessa verkefnis var að
þróa LC-MS/MS aðferð, með hjálp efnafræðilegrar tölfræði, til
magngreiningar á LTB4 í blóðvökva.
Efniviður og aðferðir: Magngreiningaraðferðin fyrir LTB4 með HPLC-
MS/MS var hámörkuð með því að nota efnafræðilega tölfræði sem
verkfæri. Sjö breytur voru kannaðar, þær voru hámarkaðar með CCD
hönnun (central composite design) og tengdar við næmni og rástíma
með PLS-aðhvarfsgreiningu. Þrjár sýnameðhöndlunaraðferðir voru
prófaðar; úrhlutun með fastfasa (SPE), prótínfelling og vökva-vökva
úrhlutun. HPLC-MS/MS aðferðin var aðlögðuð að UPLC-MS/MS
búnaðnum til aðgreiningar á LTB4 og hverfum þess.
Niðurstöður: Niðurstöðurnar sýna að flæði, upphafsmagn lífræns
leysis, keiluspenna og sundrunarhitastig höfðu veruleg áhrif á næmni
aðferðarinnar. Mikil víxlverkun var á milli nokkurra breytistærða og
veruleg ólínuleg áhrif. Fastfasa úrhlutun með metanól sem elúeringarleysi
gaf besta útslagið og var valin sem sýnameðhöndlunaraðferð. Akveðið
var að örva LTB4 í blóðvökva, þannig að kvöðrunarstaðlar voru blandaðir
í blóðvökva í stað líffræðilegs stuðpúða sem gaf næmnustu aðferðina.
UPLC-MS/MS gaf hraða aðgreiningu á milli LTB4 og hverfa þess og
aukna næmni. Báðar aðferðir hafa verið gildaðar og notaðar í klínfskum
prófunum. Magngreining á LTB4 með UPLC-MS/MS aðferðinni sýndi
betri samsvörum við skammtastærð á rannsóknarlyfinu en með HPLC-
MS/MS aðferðinni og að veruleg styrktengd lækkun var á styrk LTB4.
Alyktanir: Þessi rannsókn sýnir að efnafræðileg tölfræði er mjög gott
verkfæri við þróun á stöðugri og næmri LC-MS/MS aðferð.
V 150 Þróun á HPLC-MS/MS aðferð til magngreiningar á lífmörkum
til sjúkdómsgreininga á brjóstakrabbameini
Helga Hrund Guðmundsdóttir* 1-2'3, Baldur Bragi Sigurðsson2, Jórurrn Erla Eyfjörð3,
Margrét Þorsteinsdóttir1-2
’Lyfjafræðideild HÍ, 2ArcticMass ehf., dæknadeild HÍ
hhg3@hi.is
Inngangur: Sértækar og næmar mæliaðferðir til magngreiningar á
lífmerkjum er mikilvægur þáttur þegar efnaskipti krabbameinsfrumna
er kannaður. Efnaskiptafræði gengur út á rannsóknir sem kanna
efnafræðilegt ferli út frá mismunandi lífmerkjum. Lífmerkin geta
verið af ýmsum toga, má þar nefna amínósýrur, einnig geta þetta verið
afurðir af virkum lifandi frumum sem eru í mismunandi ástandi og á
mismunandi tíma í frumuhringnum. Lífmerkin er hægt að nýta sem
verkfæri þegar kemur að sjúkdómsgreiningu. Markmið verkefnisins
var að þróa LC-MS/MS mæliaðferð til magngreiningar á amínósýrum
í krabbameinsfrumum sem voru meðhöndlaðar með og án hindra/
krabbameinslyfja.
Efniviður og aðferðir: Mismunandi sýnameðhandlanir voru þróaðar
með það að leiðarljósi að fá sem bestu aðgreiningu á amínósýrum í
frumuæti. Prófaðar voru fjórir mismunandi lífrænir leysar og blöndur
af þeim til próteinfellingar. Bæði HPLC-MS/MS og UPLC-MS/MS
mæliaðferðir með og án jónpari voru þróaðar til magngreiningar. Sýni
frá krabbameinsfrumulínunni MCF-7 sem höfðu annars vegar verið
meðhöndlaðar með Aurora kínasa hindranum ZM447439 og hins vegar
krabbameinslyfjunum; vinblastín, docetaxeli og doxórúbisíni voru
mæld.
Niðurstöður: HPLC-MS/MS mæliaðferð með jónpari gaf samtímis
magngreiningu á 18 amínósýrum. Próteinfelling með blöndu af
metanóli og asetónítríli gaf næmnustu aðferðinar fyrir flestar
amínósýrurnar. Þrettán amínósýrur voru greindar í ómeðhöndluðum og
meðhöndluðum MCF-7 krabbameinsfrumum. Greinileg lækkun var á
magni amínósýra í krabbameinsfrumum þegar þær voru meðhöndlaðar
með krabbameinslyfjum. Magn amínósýranna lýsíns og argirúns jókst
eftir meðhöndlun með ZM447439 borið saman við magn af amínósýrum
hjá ómeðhöndluðum frumum.
Ályktanir: Fyrstu niðurstöður sýna að hægt er að nota amínósýrur sem
lífmerki við sjúkdómsgreiningu á brjóstakrabbameini.
V 151 Stýrandi áhrif útdrátta úr sjávarhryggleysingjum á þroska
angafrumna in vitro
Baldur Finnsson1, Sesselja Ómasdóttir1, Eydís Einarsdóttir1, Elín S. Ólafsdóttir1,
Ingibjörg Harðardóttir2, Jörundur Svavarsson3, Jóna Freysdóttir4-5
'Lyfjafræðideild , 2lífefna- og sameindalíffræðistofu læknadeildar, 3líf- og umhverfisvísindadeild
HI, 4rannsóknarstofu í gigtsjúkdómum, 5ónæmisfræðideild Landspítala
sesselo@hi.is
Inngangur: Líffræðilegur fjölbreytileiki í hafinu í kringum ísland hefur
nánast ekkert verið rannsakaður með tilliti til efnainnihalds lífvera.
Markmið verkefnisins var að skima fyrir stýrandi áhrifum útdrátta úr
íslenskum sjávarhryggleysingjum á þroska angafrumna in vitro með það
fyrir augum að finna ný virk efnasambönd.
130 LÆKNAblaðið 2011/97