Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Page 133

Læknablaðið : fylgirit - 01.01.2011, Page 133
XV VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ FYLGIRIT 66 skoðunum fengu þátttakendur ítarlega augnskoðun. Sjáöldrin voru víkkuð með 1% tropicamide og 10% phenylepinephrine, áður en tveir glákusérfræðingar framkvæmdu raufarsmásjárskoðun (slit-lamp) þar sem sérstaklega var leitað eftir einkennum XFS. Niðurstöður: Uppsafnað 12 ára nýgengi flögnunarheilkennis er 5,8% í hægri augum. Nýgengið er örlítið meira hjá konum en körlum, 6,4% á móti 5,4%. Aldur er helsti áhættuþátturinn, en fjöldi augasteinaskipta hjá elsta aldurshópnum felur að nokkru leyti hið sanna nýgengi. Nokkur fjöldi augna sem greinist með merki um flögnun í upphafi hefur engin slík merki 12 árum síðar. Greiningarskilmerki rannsóknarirmar spá fyrir um slíka þróun með nokkru öryggi. Ályktanir: í samræmi við fyrri rannsóknir okkar á algengi og fimm ára nýgengi, er 12 ára nýgengi flögnunarheilkennis mjög hátt á íslandi. Það eykst með aldri og er meira hjá konum en körlum. Rannsókn okkar sýnir að þau greiningaskilmerki sem sett voru fram í upphafi, spá vel fyrir um þróun heilkennisins. V 158 Lærdómsáhrif í sex mínútna gönguprófi hjá sjúklingum með langvinna hjartabilun eða langvinna lungnateppu Arna E. Karlsdóttir', Marta Guöjónsdóttir1-, Ásdís Kristjánsdóttir1, Magdalena Asgeirsdóttir1, Magnús R. Jónasson1 'Hjarta- og lungnarannsókn Reykjalundi endurhæfingarmiöstöð SÍBS, ö.ífeölisfræðistofnun HÍ arnaek@REYKJALUNDUR.is Inngangur: Sex mínútna göngupróf (6MG) er víða notað til að meta árangur endurhæfingar hjá hjarta- og lungnasjúklingum. Það er ódýrt og auðvelt í framkvæmd, tekur stuttan tíma og hentar því vel í klínískri vinnu. Sterk lærdómsáhrif eru þekkt í þessu prófi. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hversu mörg próf þarf tii að yfirvinna lærdómsáhrif hjá sjúklingum með langvinna hjartabilun eða langvinna lungnateppu og hvaða áhrif þau hefðu á mat árangurs. Efniviður og aðferðir: Rannsakaðir voru 25 sjúklingar með langvinna hjartabilun (23kk/2kvk, 55±9,5 ára, NYHA II-III, útstreymisbrot vinstri slegils s35%) og 25 sjúklingar með langvinna lungnateppu (llkk/14kvk, 64,2±8,8 ára, með FEVl <50% af áætluðu). Allir sjúklingar kláruðu fjögur 6MG fyrir og eftir endurhæfingu. Öll prófin voru framkvæmd á þriggja daga tímabili með minnst einnar klst. hvíld á milli prófa. Sjúklingar dvöldu að meðaltali í 5,8±0,8 vikur í endurhæfingu þar sem áhersla var lögð á þol- og styrktarþjálfun. Niðurstöður: Gönguvegalengdin sem sjúklingar gengu jókst með hver- ju prófi hjá báðum hópum fyrir endurhæfingu. Sjúklingar með langvin- na hjartabilun gengu 485±102m í fyrsta prófi (Pl) og 521±113m í fjórða prófi (P4), sjúklingar með langvinna lungnateppu gengu 445±101m í P1 og 492±104m í P4. Mesta breytingin varð á milli P1 og P2 í báðum hópum eða um 4% hjá sjúklingum með langvinna hjartabilun og 6,3% hjá sjúklingum með langvinna lungnateppu. Eftir endurhæfinguna var sama tilhneigingin. Sjúklingar í báðum hópum bættu göngugetu sína með hverju prófi en þó minna en í prófunum fyrir endurhæfinguna, sérstaklega sjúklingar með langvinna hjartabilun. Þeir gengu að meðal- tali 542±105m í P1 og 560±109m í P4 en sjúklingar með langvinna lung- nateppu gengu að meðaltali 514±94m í P1 og 546m±94m í P4. Ályktanir: Samkvæmt þessum niðurstöðum þarf að lágmarki fjögur 6MG bæði fyrir og eftir endurhæfingu til að yfirvinna lærdómsáhrif prófsins hjá þessum hópi sjúklinga. Mesta aukning milli prófa er milli P1 og P2 fyrir endurhæfingu, sem undirstrikar mikilvægi þess að fram- kvæma að minnsta kosti tvö próf í upphafi íhlutunar. V 159 Skimun fyrir blæðingu frá meltingarvegi hjá sjúklingum á blóðþynningarmeðferð með warfaríni Guðrún Arna Jóhannsdóttir1, Páll Torfi Önundarson1-2, Brynja R. Guðmundsdóttir2, Hallgerður Bjamhéðinsdóttir2, Ragnhildur Björk Karlsdóttir2, Védís Húnbogadóttir2, Einar Stefán Bjömssonu ^Læknadeild HÍ, 2segavömum blóðmeinafræðideild, 3meltingardeild Landspítala gaj4@hi.is Inngangur: Markmiðið var að kanna algengi og orsakir dulinna blæðinga frá meltingarvegi hjá sjúklingum á warfaríni með mælingu blóðhags samtímis öllum mælingum á INR (international normalized ratio). Efniviður og aðferðir: Farið var yfir sjúkraskýrslur skjólstæðinga segavarna Landspítala, sem fengu bréf frá segavörnum á 18 mánaða tímabili vegna gruns um dulda blæðingu. Ef lækkun blóðrauða (hemóglóbíns) var >25g/l eða lækkun á mean cell volume (MCV) var >5fl frá meðalgildi sjúklings eða MCV <80fl mat blóðmeinafræðingur hvort ástæða væri til nánari rannsóknar. Sjúklingar sem voru metnir með aðra skýringu á blóðskorti, til dæmis krónískan blóðskort, fengu að jafnaði ekki bréf. Leitað var upplýsinga um hve margir leituðu læknis í kjölfar bréfsins, hve margir voru rannsakaðir nánar svo sem með maga- og ristilspeglunum, og hvaða orsakir lækkunar blóðgildis fundust. Niðurstöður: Á þessu tímabili voru um 2600 manns í warfarínskömmtun hjá segavörnum. Af þeim uppfylltu 441 sjúklingur skilmerki rannsóknarinnar. Læknar segavama völdu að senda 234 einstaklingum (53%) bréf. Leituðu 111 læknis vegna þess (47% þeirra sem fengu bréf, 4,3% blóðþynntra). Af 111 reyndist einn hafa bráðahvítblæði og 78 (70%) fóru í maga- og/eða ristilspeglun. Hjá þeim fundust illkynja sjúkdómar hjá 11 (10 ristilkrabbamein og eitt vélindakrabbamein) og forstig krabbameina hjá 20 (16 separ í ristli, fjórir í maga). Samtals höfðu því 31 einstaklingur krabbamein eða forstig krabbameina í göm eða 1,2% blóðþynntra. Einnig höfðu 27 sjúklingar (1,0%) sár/fleiður í maga eða æðamissmíðar sem oft þörfnuðust meðferðar. Ályktanir: Mæling blóðhags leiddi til greiningar sjúkdóma hjá 2,3% blóðþynntra, þar af á krabbameinum og forstigum krabbameina í görn hjá 1,2%. Þessar niðurstöður gætu bent til þess að skimun með blóðhag blóðþynntra gæti flýtt greiningu illkynja sjúkdóma og þannig bætt horfur sjúklinganna. V 160 Nýrnafrumukrabbamein af litfælugerð á íslandi 1971-2005 Jóhann P. Ingimarsson1, Sverrir Harðarson2-4, Vigdís Pétursdóttir2, Eiríkur Jónsson1, Guðmundur V. Einarsson1, Tómas Guðbjartsson3,4 'tvagfæraskurðdeild, 2rannsóknastofu í meinafræði, 3skurðsviði Landspítala, 4læknadeild HÍ tomasgud@landspitali.is Inngangur: Litfæluæxli (chromophobe) eru sjaldgæfur undirflokkur nýmafrumukrabbameina. Erlendar rannsóknir benda til betri lífshorfa sjúklinga með þessi æxli, en fáar byggja á stóm þýði sjúklinga frá heilli þjóð. Markmið rannsóknarinnar var að kanna lífshorfur þessara sjúklinga borið saman við aðra vefjaflokka. Efniviður og aðferðir: Átta hundruð tuttugu og átta vefjafræðilega staðfest nýrnafmmukrabbamein greindust á íslandi 1971-2000. Öll vefjasýni voru endurskoðuð og reyndust 15 þeirra af litfælugerð. Upplýsingar fengust úr sjúkraskrám. Æxlin vom stiguð og reiknaðar út lífshorfur (sjúkdóma sértækar), með aðferð Kaplan-Meier. Litfæluæxlin voru borin saman við tærfrumu (n=740) og totugerð (n=66) nýmafrumukrabbameina, bæði með ein- og fjölþáttagreiningu. Eftirfylgd var fimm ár að miðgildi. LÆKNAblaðið 2011/97 133
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.