Tímarit Máls og menningar - 01.11.1955, Page 32
TÍMARIT MÁLS OC MENNINGAR
verður ekkert að gagni gert án vilja
þeirra og atbeina. Eigendur bókhalds-
skyldra fyrirtækj a eru að vísu skyldir
samkvæmt ákvæðum bókhaldslaganna
að varðveita skjalasöfn sín í 10 ár, en
geta síðan ráðstafað þeim eftir geð-
þótta, varðveitt þau eða tortímt þeim
eftir því sem þeim býður við að horfa.
Ollum öðrum er heimilt að tortima
skj alasöfnum sínum, hvenær sem þeir
vilja. Ég efast þó ekki um, að þeir að-
iljar, sem mál þetta varðar, muni gera
sér grein fyrir því, að ekki muni leng-
ur rétt að láta hendingu eina ráða,
hvað um skjalasöfn þeirra verður,
heldur muni láta sér skiljast að þeir
bera ábyrgð gagnvart þjóð sinni um
geymd þeirra, og að nauðsyn ber til
að komið verði á viðunanlegri skip-
un um þessi mál og það sem allra
fyrst.
Fyrsta verkefnið er að láta fara
fram rannsókn á því, hversu mörg
atvinnuskjalasöfn í einkaeign eru nú
til í landinu.
Næsta verkefnið að komast að
bráðabirgðasamkomulagi við eigend-
ur þessara skjalasafna um örugga
geymd þeirra.
En lokaverkefnið er að koma fram
þeirri einu varanlegu lausn, sem þjóð-
in getur sætt sig við, með stofnun
heimildasafns atvinnuveganna.
222