Tímarit Máls og menningar - 01.11.1955, Blaðsíða 79
STIG DAGERMAN
Næturleikir
Stig Dagerman var fæddur í Álvkarleby í Svíþjóð 5. október 1923. Hann lauk stúdents-
prófi 19 ára gamall og innritaðist sama ár við Stokkhólmsháskóla, þar sem hann stundaði
nám næstu tvö árin. Jafnhliða háskólanámi stundaði hann blaðamennsku við dagblaðið
Arbetaren, var menningarmálaritstjóri þess 1944—46, meðritstjóri tímaritsins Prisma
1948—50 og skrifaði að staðaldri um menningarmál í Dagens Nyheter frá 1951 til dauða-
dags.
Þegar hann var aðeins tuttugu og tveggja ára gaf hann út skáldsöguna Ormen er vakti
þegar gífurlega athygli. Aðrar skáldsögur hans eru De dömdas ö (1946), Briint barn (1948)
og Bröllopsbesvar (1949). Árið 1947 gaf hann út þáttasafnið Nattens lekar og ferðalýsing-
ar frá Þýzkalandi, Tysk höst. Þá samdi hann fjögur leikrit er út hafa komið í tveim bind-
um, Dramer om dömda (Den dödsdömde og Skuggan av Mart — 1948) og Judasdramer
(Streber og Ingen gár fri — 1949). Fleiri verk gaf hann ekki út. Hann réð sig af dögum 4.
nóvember s.l. og var öllum harmdauði.
Bókmenntafræðingurinn dr. Olof Lagercrantz segir í minningargrein um Stig: . Þegar
leikritið „Den dödsdömde" hafði verið sýnt 1947 og hinar leiftrandi ferðalýsingar frá
Þýzkalandi, Tysk höst, höfðu verið gefnar út sama ár, var Ijóst orðið að þessi tuttugu og
fjögra ára gamli piltur var mesti hæfileikamaðurinn í hópi ungu skáldanna ... f mörgu var
hann ólíkur öðrum rithöfundum sem ég hef kynnzt, og mér varð tamt að líta á hann sem
fulltrúa nýrrar manngerðar er stóð nútímanum nær en aðrar ... Það var erfitt að skilja
hann, auðvelt að elska hann.“ £ £
STUNDUM á kvöldin þegar móðir Aka liggur grátandi inni í herberginu og
ókunnugleg fótatök ein heyrast í stiganum hefur hann fariS í leik, sem hann
grípur til í stað þess aS gráta. Hann ímyndar sér aS hann sé ósýnilegur og geti
komizt hvert sem hann óskar, ef hann aSeins hugsi sér þaS. Á slíkum kvöldum
kemst ekki nema einn staSur inn í óskaveröld Áka, og þangaS er hann sem sagt
skyndilega floginn. Hann veit ekki meS hvaSa hætti hann hefur komizt þangaS,
veit aSeins aS hann stendur inni í herbergi. Hvernig þar er umhorfs veit hann
ekki, vegna þess aS hann hefur ekki áhuga á því, en loftiS er þrungiS sígarettu-
og pípureyk og karlmenn reka skyndilega upp ofsahlátur, ástæSulausan og
269