Tímarit Máls og menningar - 01.11.1955, Blaðsíða 42
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
hann Heinrich Mann, var stórkaup-
maður af gamalli höfðingjaætt í borg-
inni. Móðir hans, Julia de Silva-
Bruhns, var ættuð úr Argentínu.
Thomas átti fjögur systkini, og varð
bróðir hans Heinrich einnig frægur
rithöfundur. Föður sinn missti
Thomas er hann var seytján ára, og
fluttist ári síðar með móður sinni til
Múnchen (í Rambergstræti 2) þar
sem liann átti eftir að eiga heima í
fjörutíu ár eða þar til hann varð að
hrekjast burt úr landi undan fasism-
anum.
Buddenbrooks nefnist fyrsta skáld-
sagan eftir Thomas Mann. Hún varð
snemma frægt verk og hann hlaut fyr-
ir hana bókmenntaverðlaun Nobels
1929. Sagan kom út 1901 og var höf-
undurinn þá 26 ára, en áður hafði
birzt eftir hann smásagnasafn, Der
kleine Herr Friedemann 1897. Bud-
denbrooks gerist í Lúbeck. Hún er
saga stórkaupinanns og höfðingja-
ættar í borginni í fjóra ættliði og hef-
ur undirtitilinn: Hnignunarsaga ætt-
ar. Þegar höfundur semur bókina er
hann kominn til Múnchen, en endur-
minningarnar um Lúbeck, bernsku-
stöðvarnar sem horfnar eru í fjarska,
glæðast auðugu lífi, bæði sáru og
ljúfu, eins og sjá má eigi síður af
Tóníó Kröger. Skáldsagan Budden-
brooks er heimur þessara endurminn-
inga, þrungin borgaralegu andrúms-
lofti hins forna kaupsýslustaðar. Hún
er í meginatriðum saga af ætt höfund-
arins sjálfs, og þau ættarörlög sem
sagan leitast við að ráða fram úr eru
dregin af reynslu hans og verða tilefni
þeim mun dýpri íhugunar. Budden-
brooksættin, stórkaupmenn, konsúlar
og senatorar, er auðug og valdamikil
og lieldur uppi virðingu og ströngum
borgaralegum siðvenjum. Tveir fyrstu
ættliðirnir eru dugmiklir og gengur
flest að óskum. I þriðja lið fer ættin
að eiga í vök að verjast, bæði út á við
vegna harðnandi samkeppni um
gróða og völd og inn á við af veilum
sem koma fram í ættinni sjálfri.
Thomasi Buddenbrooks, sem er þriðji
ættliður, tekst þó að halda í horfinu
jafnt verzluninni sem valdastöðu ætt-
arinnar í borginni, en verður fyrir
margs konar skakkaföllum. Tilraunir
sem hann gerir til að styrkja sig með
tengdum misheppnast allar og
hnekkja í þess stað áliti hans og fvrir-
tækisins. Tóníó er hin eina af systkin-
um bans sem hefur sterka skapgerð
og verulegan ættarmetnað. Bróðir
hans, Christian, er óreglusamur og
taugaveiklaður, til einskis nýtur.
Kona Thomasar Buddenbrooks lifir
mest í tónlist og liugur hennar dregst
að öðrum. Einkasonur hans, Hannó,
er mjög veiklyndur og viðkvæmur frá
bernsku, lifir og hrærist í tónlist, þolir
ekki minnsta andblæ, veikist og deyr
15 ára. Þar með er enginn til að taka
við af Thomasi Buddenbrooks. Sjálf-
ur er hann ekki heill í starfi sínu, ræk-
ir það frekar af skyldurækni en
232