Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1955, Page 41

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1955, Page 41
KRISTINN E. ANDRÉSSON THOMAS MANN 1875—1955 Engir ferðast meira en íslendingar. Þeir koma í mörg lönd, dveljast þar lengur eða skemur, fljúga um allan heim og vilja kynnast sem flestu. Þeir fá yfirlit um margt, leita fyrir sér í ýmsum greinum, en geta að sjálf- sögðu ekki komizt yfir allt né kynnzt nema fáu til hlítar. Heimurinn er stór og svæði þekkingarinnar vítt og þó að flogið sé urn mörg lönd verða stórar eyður eftir á hnettinum og stórar eyð- ur í þekkinguna, of margt af handa- hófi sem fyrir augu ber og kunnáttan vfirborðsleg og í molum. Ekki á þetta sízt við um bókmennt- irnar. Þar hefur víða verið leitað fanga, drepið niður á mörgum stöð- um, margt og misjafnt verið borið á land, gripið lauslegt af yfirborðinu, en jafnvel flest af því sem verðmætast er orðið út undan og veldur fleira en áhugaleysi á góðum bókmenntum. Við erum minntir ónotalega á þetta öðru hvoru, en þó sjaldan með áþreif- anlegri hætti en á liðnu sumri. Thom- as Mann hverfur áttræður frá starfi og við horfumst í augu við þá stað- reynd að hann er í rauninni ókunnur höfundur hér á landi; eftir hann er aðeins ein bók, Tóníó Kröger, þýdd á íslenzku (útgefin af Máli ogmenningu 1942 í þýðingu eftir Gísla Ásmunds- son). Thomas Mann lætur þó eftir sig ef til vill mest afrek í bókmenntum 20. aldar. Hann er viðurkenndur einn mesti snillingur á þýzka tungu síðan Goethe leið, er arftaki hans í þýzkum nútíma bókmenntum og einn fremsti ef ekki mesti skáldsagnahöfundur á þessari öld. Má því kveða svo sterkt að orði að það sé hin stærsta eyða í bókmenntaþekkingu hvers manns að vera ekki kunnugur verkum þessa rit- höfundar. Þó seint sé risið til verka verður nú gerð tilraun til að kynna hann íslenzkum lesendum, og eru þá reyndar endurnýjuð gömul kynni og tekinn upp fyrri þráður (úr smágrein sem birtist í Eimreiðinni 1930). Skáldverk og æviatriði Thomas Mann fæddist. í Liibeck, gömlu hansaborginni við Eystrasalt, 6. júní 1875. Faðir hans, Thomas Jo- 231
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.