Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1955, Side 47

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1955, Side 47
THOMAS MANN átti griðland í fimm ár (1933—1938), en fjórða bindið í Bandaríkjunum þar sem hann dvaldist öll styrjaldar- árin síðari og varð amerískur ríkis- borgari með aðsetur lengst af í Kalí- forníu. Fyrsta bindið heitir Sögur Jakobs (Die Geschichten Jaakobs 1933) með 64 síðna inngangskafla sem nefnist För til undirheima og er forleikur að skáldsögunni allri: för niður í djúp liðinna alda. Sögur Jakobs rekja bæði upptökin aftur til Abrahams og sköpunar mannsins og lýsa fram í söguna til þess er eftir kemur. Annað bindið, Jósej á œsku- árum (Der junge Joseph, 1934), segir frá uppvexti Jósefs, ást Jakobs á hon- um, öfund bræðra hans er fær þá til að kasta honum í gryfju og segja hann dauðan. Þriðja bindi, Jósef í Egypta- landi (Joseph in Agypten, 1936) ásamt lokabindinu, Jósef lífgjafi (Jo- seph der Ernahrer, 1944), gerist í nýju umhverfi hámenningarríkisins í Nílárdalnum sem frá því á bernsku- dögum hafði dregið að sér hug skálds- ins. Eftir langa neyð vinnur Jósef sér frægð í hinu framandi landi, en kona Pótifars rægir hann, og enn er honum varpað í fangagryfju. Hinn góði vörður þar bjargar honum, og með ráðspeki sinni vinnur hann trúnað hins unga Faraós sem kominn er sejtján ára til valda eftir föður sinn, en Jósef er þá þrítugur. Nú verður hann ráðherra og ráðgjafi Faraós og gerir miklar framkvæmdaáætlanir til varnar hungursneyð komandi ára. Víkur sögunni um skeið til Kanaans- lands þar sem tvö fyrstu bindin ger- ast, bræður hans koma og faðir hans fær að vita um að hann sé á lífi. Hungursneyðin kemur og ráðstafanir Jósefs koma til framkvæmda. Sagan endar á andláti Jakobs í Gósenlandi, og er múmía hans flutt heim með mik- illi viðhöfn svo að bein hans öðlist hvílurúm í gröf feðranna. Áður en Thomas Mann lauk fjórða bindinu af Jósef og bræðrum hans rit- aði hann inn á milli aðra skáldsögu, Lotta kemur til Weimar (Lotte in Weimar, 1939), í rauninni bók um Goethe og má telja að hún sé hliðstæð þessu verki. í báðum er hann að lyfta manninum til æðstu tignar og hlaða húmanismanum varnarvirki gegn niðurrifsöflunum sem voru að verki í föðurlandi hans. Efni sögunnar er í stuttu máli að Lotte, eða fullu nafni Charlotte Kestner, f. Buff, frá Wetz- lar, sjálf hin tilbeðna fyrirmynd Lottu í Raunum Werthers unga (Die Leiden des jungen Werthers, skáld- sögu Goethes frá æskuárunum sem mesta hrifningu vakti), kemur til Weimar 1816, þá ekkja, sextíu og þriggja ára, eftir að liðin eru 44 ár frá kynningu Goethes og hennar. Hún kemur í gistihúsið „Zum Elephanten“ í Weimar, kl. um 8 að morgni einn septemberdag, með dóttur sinni og er, a. m. k. í orði kveðnu, að heimsækja systur sína og ætlar að borða hjá 237
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.