Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1955, Page 82

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1955, Page 82
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR og Aki sem var farinn úr vagninum fyrir nokkru og liggur nú í sófanum sínum tekur eftir því, að móðir hans hefur hætt að snökta á þessari stuttu stundu sem hann var að heiman. Dragtjaldið í herberginu flýgur upp í loft með ógurlegum smelli, og þegar hvellurinn er hljóðnaður opnar móðirin gluggann og Áki óskar þess að hann gæti stokkið fram úr fleti sínu og hlaupið inn í herbergið og hrópað til hennar að henni sé alveg óhætt að loka glugganum, draga niður tjaldið og leggjast róleg og ókvíðin til hvílu, því nú sé hann örugglega að koma. „Hann kemur með þessum vagni, því máttu treysta — ég hjálpaði hon- um sjálfur upp í!“ En Áki veit að það væri ekki til neins, hún mundi ekki trúa honum. Hún veit ekki hvað hann gerir fyrir hana þegar þau eru ein heima á næturnar og hún heldur að hann sofi. Hún veit ekki um allar langferðirnar sem hann fer og allar þær hættur sem hann stofnar sér í hennar vegna. Þegar sporvagninn nemur staðar á biðstöðinni bak við hornið stendur hann einnig við gluggann og gægist út um rifuna milli dragtjaldsins og gluggakarms- ins. Fyrstir fyrir hornið eru tveir unglingar sem hljóta að hafa stokkið af á ferð, þeir boxast í gríni og halda til heimkynna sinna í nýja húsinu hinum megin götunnar. Fólk sem hefur stigið úr er að skvaldra handan við hornið og þegar Ijósaugu vagnsins gægjast fram og hann skröltir hægt eftir götunni hans Áka koma smáhópar í humátt á eftir og hverfa síöan í ýmsar áttir. MaÖur með hattinn í hendinni eins og betlari og reikull í spori stefnir beint að útidyr- unum hjá Áka, en það er ekki pabbi hans, heldur húsvörðurinn. Áki stendur samt kyrr og bíÖur. Hann veit að margt getur tafið fyrir mönn- um bak við hornið, þar eru margir sýningagluggar, til dæmis á skóverzlun- inni og vel getur verið að faðir hans standi þar og sé að velja sér skó áður en hann fari upp, og á ávaxtabúðinni er gluggi með handmáluðum auglýsinga- spjöldum sem mörgum verður tíðlitið á vegna þess að á þeim eru kyndugir karlar. En hjá ávaxtabúÖinni er líka sjálfsali sem er alltaf að bila og það getur svo sem meira en hugsazt að faðir hans hafi stungið tuttuguogfimmeyringi í eina rifuna til að kaupa lakkrísöskju handa Áka og geti nú ekki með nokkru móti opnað skúffuna. Meðan Áki stendur við gluggann og bíður þess að faðir hans hætti að bauka við sjálfsalann gengur mamma hans allt í einu út úr herberginu og fram hjá eldhúsinu. Vegna þess að hún er berfætt hafði Áki ekki heyrt til hennar. en hún getur ekki hafa tekið eftir honum því að hún heldur áfram fram í forstof- una. Áki sleppir gluggatjaldinu og stendur síðan gjörsamlega hreyfingarlaus í náttmyrkrinu, meðan móðir hans er að leita einhvers í yfirhöfnunum. Það hlýtur að hafa verið vasaklútur, því eftir dálitla stund snýtir hún sér og gengur 272
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.