Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1955, Page 111

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1955, Page 111
HEIÐIN ekki að nefna það, né líkja það eftir, en hann kunni að meta gildi þess og dá yfirburði þess ... 143—144 Þegar læknirinn tekur utan um prófastsdótturina í allra ásýn og kyssir hana á munninn, en hún tekur í staðinn handfylli sína í hárið á honum og gefur honum utan undir, þá finnst drengnum, að slík framkoma við unga stúlku hljóti ,,að vera hápúnkturinn á öllum glæsileik í veröldinni, og hann gat sjálfur ekki hugsað sér neitt hlutskifti öllu ákjósanlegra en að láta únga stúlku berja sig í góðu fyrir koss“ (149). Akveðið verður, að Guðmundur fari í skóla hjá eldri dóttur prófastsins. Fimmtándi kafli (bls. 152—168). — Um kvöldið sama daginn tekur Símon, sem er nokkurskonar faktótum hjá lækninum, drenginn með sér í „einn meiri háttar leiðángur“ um kaupstaðinn. Sjálfur er Símon „ekki margmáll né skemtilegur“; hann er „á litinn eins og glerhákarl“ (156). Þeir koma fyrst við hjá fríkirkjuprestinum og konu hans. Þetta er „horaður maður með stórt nef og stríða, djúpa drætti kríngum munninn og blá augu fá- dæma saklaus, innileg og heimskuleg“. Hann er „mentunarlaus og prestvígslu- laus uppgjafa-sergent úr Hjálpræðishernum“ (153—154). Fríkirkjuprestur- inn hefur nokkrar áhyggjur út af því, að drengurinn skuli hafa lent hjá lækn- inum, sem er „bæði guðlastari og trúníðíngur“ (154). Svo koma þeir Símon í veitingahús, þar sem nokkrir menn og unglingar sitja við bjórdrykkju. Uppi á stól í miðju herberginu stendur roskinn maður með „undarlegan glampa í augunum“ og talar um „Kristján konung tíunda og skuldir hans við sig“ (156). Guðmundi finnst mikið til um þessa ræðu, því það er í fyrsta skiptið á æfinni, sem hann heyrir „ræðu haldna utan predikunar- stóls“. Fæstir virðast þó kæra sig mikið um að hlusta. T. d. er drukkinn maður „með blátt kartöflunef og harðan flibbá“ að kveða rímur, meðan á þessari stórkostlegu ræðu stendur. Aðalpersónan í samkundu þessari reynist samt vera maður „með mórautt andlit og gulltennur“, „í frakka með loðnum kraga“ (157). Þetta er Vestur- íslendingurinn Mr. Vídalín, eða „helvítið hann Fíólín“, eins og sumir nefna hann. Unglingarnir vilja bjóða honum bjór, en hann er fyrst-hinn fýldasti. Loks lætur hann þó svo lítið að þiggja þetta hland, og fer að segja þeim frá reynslu sinni þar vestra. Þetta eru æfintýralegar sögur um ríka kvenmenn, sem hafa sótzt eftir félagsskap Mr Vídalíns og borgað honum 50 og upp í 100 doll- ara í hvert skipti. Sögur hans vekja mikla aðdáun og fjörugar umræður. 301
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.