Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1955, Page 130

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1955, Page 130
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Tveir kaflar í Alþýðubóhinni, „Þjóðerni“ og „Um Jónas Hallgrímsson“, bera því fagurt vitni. Reyndar eru allar helztu persónur Heiðarinnar fullar af þjóðarmetnaöi: kaupfélagsstjórinn, faðir hans ferjumaðurinn, prófasturinn, að ógleymdum skóaranum og Stefáni Stefánssyni skáldi. Sama er að segja um lækninn, þó með öðrum hætti sé. Allir sem einn maður munu þeir fordæma „helvítið hann Fíólín“ og svik þessa vesturfara við föðurland sitt. Svipar áliti þeirra mjög til skoðana þeirra, sem Halldór gerist sjálfur talsmaður fyrir á ameríkuárum sínum. „Hvern Djöfulinn vilja Íslendíngar líka vera að grafa skurði í Saskatchewan?“ spyr hann í bréfi til Ragnars Kvarans 19. nóvember 1927. Og ritgerðin „Þjóðerni“ ber vott um vonbrigði höfundarins út af Amer- íku, samfara auknum metnaði fyrir hönd íslands. En í Heiðinni hefur skáldinu enn ekki tekizt að samræma þjóðfélagsgagnrýni og þjóðerniskennd, að láta þessar andstæður togast á í blæbrigðaríkum samleik. Framsetningin er of grófgerð, hana vantar ekki hvað sízt hina glitrandi kímni, sem heillar lesand- ann í Sjálfstœðu fólhi. Annars er þjóðfélagsgagnrýnin engan veginn léttari á metunum í sögunni um Bjart heldur en í Heiðinni. Þó hún sé ekki eins áberandi á yfirborðinu, þá ristir hún samt dýpra og verður að þungri undiröldu gegnum allt verkið. Hug- takið stéttabarátta í marxískum skilningi hefur fært skáldinu nýja möguleika til að skapa meiri og áhrifaríkari andstæður innan sögunnar. Leið hans þangað verður ekki rakin hér. En gera má ráð fyrir, að ýmsar greinar um málefni bænda í tímaritinu Rjettur árin 1926—1931, m. a. eftir Brynjólf Bjarnason og Einar Olgeirsson, hafi átt sinn þátt í þessari þróun. Loks hefur auðvitað heim- sókn Halldórs til Ráðstjórnarríkjanna árið 1932 haft mikla þýðingu. En ferða- saga hans, / Austurvegi (1933), fjallar að mestu leyti um landbúnað. Ýmis sjónarmið, jafnvel sum orðatiltæki, úr þessu kveri hefur skáldið notfært sér í Sjálfstœðu fólhi. í Eftirmála að annarri útgáfu af sögunni, 1952, hefur hann minnzt sjálfur lítilsháttar á þessar forsendur hennar. Hann nefnir fyrstu gerð sögunnar frá Los Angeles „ófullkomin drög“; þekkingarskortur hans á efninu hafi fljótt orðið honum ljós: ekki fyren þrem árum seinna hafði ég heyað mér til viðbótar, svo ég þyrði að byrja á nýa- leik; það var í Berlín 1932. Það haust fór ég til Ráðstjómarríkjanna að kynnast stöðu bænda í þjóðfélagsskipuninni þar, en einmitt á þeim misserum var samyrkjuhreyfíngin að ryðja sér til rúms í landi þessu. í raunveruleikaskoðun þeirra sovétmanna á málinu, þar sem aungvir ljóðrænir sérvitríngar komust að til að villa um fyrir rannsóknaranum, varð mér fljótt starsýnt á nokkra höfuðdráttu, en þar á meðal var hin einfalda en að því skapi glöggvandi skiftíng bænda eftir stétt: stórbændur, meðalbændur, smábændur. Þessi skift- íng, sem manni finst eftirá hluta sjálfsögðust, lauk í raun og veru upp fyrir mér öllu vanda- 320
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.